Handbolti

ÍR aftur í annað sætið

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Björgvin kann að kasta handbolta í mark
Björgvin kann að kasta handbolta í mark vísir/vilhelm
ÍR lagði Akureyri 32-28 í Olís deild karla í handbolta á heimvelli í dag. ÍR lyfti sér þar með aftur upp í annað sæti deildarinnar.

ÍR-ingar léku frábæran sóknarleik í fyrri hálfleik og voru sex mörkum yfir í hálfleik 18-12.

Akureyri beit frá sér í seinni hálfleik og náði að minnka muninn en aldrei þó nóg til að ógna sigri ÍR.

Björgvin Þór Hólmgeirsson fór á kostum í leiknum og skoraði 14 mörk fyrir ÍR. Sturla Ásgeirsson skoraði 5 líkt og Davíð Georgsson og Bjarni Fritzson skoraði 4 mörk gegn fyrrum lærisveinum sínum.

Kristján Orri Jóhannsson skoraði 5 mörk fyrir Akureyri. Andri Snær Stefánsson skoraði 5 og Bergvin Þór Gíslason 4.

ÍR er með 12 stig eftir 8 umferðir, stigi á eftir toppliði Aftureldingar og stigi á undan FH og Val.

Akureyri er í sjöunda sæti með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×