Innlent

Interpol leitar að Íslendingi

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Myndirnar af Jóni Valdimar frá Interpol virðast nokkuð gamlar en hann er auðþekktur af húðflúrum sínum.
Myndirnar af Jóni Valdimar frá Interpol virðast nokkuð gamlar en hann er auðþekktur af húðflúrum sínum. Vísir/Interpol
Interpol auglýsir eftir Íslendingnum Jóni Valdimar Jóhannssyni á síðu sinni þar sem hann er sakaður um grófa líkamsárás. Það eru yfirvöld á Íslandi sem lýsa eftir honum.

Jón Valdimar er 32 ára gamall en árið 2008 hlaut hann 30 daga skilorðsbundinn dóm hér á Íslandi fyrir umferðar og fíkniefnalagabrot.

Samkvæmt Facebook síðu hans er Jón Valdimar staddur í Danmörku eins og stendur en hann er með skrásett heimili í Grikklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×