Viðskipti erlent

Instagram myndir ekki lengur bara ferningslaga

Samúel Karl Ólason skrifar
"Við vitum að það hefur ekki verið auðvelt að deila þessari tegund efnis á Instagram.“
"Við vitum að það hefur ekki verið auðvelt að deila þessari tegund efnis á Instagram.“ Vísir/EPA
Instagram hefur nú verið breytt á þann veg að ekki er eingöngu hægt að deila ferningslaga myndum. Nú er einnig hægt að deila hefðbundnum myndum og myndböndum. Bæði láréttum og lóðréttum. Í tilkynningu frá samfélagsmiðlinum segir að þetta hafi verið gert vegna þess að notendur hafa klippt til eina af hverjum fimm myndum og myndböndum sem deilt er.

„Við vitum að það hefur ekki verið auðvelt að deila þessari tegund efnis á Instagram. Vinir er skornir af hópmyndum, myndbönd virðast þröngt setin og það er ekki hægt að taka myndir af Golden Gate brúnni frá öðrum enda til hins,“ segir í tilkynningunni.

Sé myndum deilt virðist sem að ekkert hafi breyst og kemur sami ramminn og áður upp. Hins vegar birtast myndirnar svo á netinu eins og þær eiga að líta út, hvort sem þær eru láréttar eða lóðréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×