Viðskipti innlent

Innviðafjárfestingabanka Asíu stofnaður

Atli Ísleifsson skrifar
Frá fundinum fyrr í dag.
Frá fundinum fyrr í dag. Vísir/AFP
Stofnskrá Innviðafjárfestingabanka Asíu (Asian Infrastructure Investment Bank, AIIB), sem Ísland er stofnaðili að, var samþykkt á ráðherrafundi stofnríkja bankans í Peking fyrr í dag. Ragnar Baldursson sendifulltrúi skrifaði undir fyrir hönd Íslands.

Í frétt utanríkisráðuneytisins var ákveðið að stefna að kosningu forseta bankans á sjötta undirbúningsfundi stofnríkja, sem haldinn verður í georgísku höfuðborginni Tíblisi í ágúst.

„AIIB er fjárfestinga- og þróunarbanki sem mun styðja aðgerðir til að efla innviði í Asíu. Aðild Íslands að bankanum getur þýtt aukin tækifæri fyrir íslenskt viðskiptalíf í Asíu, og er ætlað að styrkja góð samskipti Íslands og Asíuríkja.

Stofnfjárhlutur Íslands miðast við stærð hagkerfisins og er um 0,018% af heildar stofnfé bankans. Sem stofnaðili verður atkvæðavægi Íslands þó mun hærra, eða um 0,28%,“ segir í frétt ráðuneytsins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×