Erlent

Innsýn í samfélög í Bandaríkjunum þar sem Trump naut mikils stuðnings

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Á hverjum morgni í 65 ár hefur Ed Shepard, nú 93 ára, gengið til vinnu og opnað bensínþjónustustöð í Welch í McDowell sýslu í Vestur-Virginíu. Kjósendur í sýslunni voru upp til hópa yfirlýstir stuðningsmenn Donald Trump í forsetakosningunum vestanhafs en margir Íslendingar velta fyrir sér hvernig Trump fór að því að ná kjöri.

Fjölmargir Íslendingar hafa numið í Bandaríkjunum og búið ytra. Stærstur hluti hefur búið í stórborgum, verið í háskóla og þekkir því aðallega til hámenntaðs fólks og þéttbýla. Þeirra samfélaga þar sem Hillary Clinton naut meiri stuðnings en Trump. Allt önnur staða eru uppi á teningnum í dreifbýlum og sveitum þar sem tækifæri til menntunar eru minni og fátækt sömuleiðis meiri.

Nánari útskýringar á því hvernig Trump náði kjöri má lesa hér.

Fréttateymi Guardian heimsótti McDowell sýslu sem hefur glímt við fátækt í lengri tíma, með það fyrir augum að fá svör við spurningunni hvers vegna íbúum sýslunnar líst svo vel á Donald Trump. Óhætt er að segja að bærinn Welch megi muna sinn fífil fegurri en á sínum tíma iðaði allt af lífi og rekstur fyrirtækja og verslana af ýmsum toga gekk afar vel. 

„Það er alveg sama hvað þig vantaði eða þurftir, það var hægt að kaupa allt í Welch,“ segir Shepard. Ótrúleg fullyrðing miðað við stöðu mála þar í dag.

Litla New York

Bærinn var kallaður „Litla New York“ af heimamönnum en nú eru verslunarrými tóm og hús að grotna niður. Shepard var vanur því að fara með peninga í bankann á hverjum mánudegi, oft töluverðar upphæðir, en hefur ekki farið í bankann í fjögur til fimm ár. Ástæðan er sú að enginn hefur verslað við hann allan þann tíma.

Um 100 þúsund manns bjuggu í sýslunni árið 1950 en íbúar í dag eru tæplega 20 þúsund. Reiknað er með því að íbúum muni fækka um eitt prósent á ári næstu ár.

Í spilaranum að ofan má sjá fréttaskýringu Guardian þar sem íbúar í sýslunni voru teknir tali í aðdraganda kosninganna. Það skýrir mögulega fyrir einhverjum ástæður þess að Donald Trump náði kjöri sem forseti Bandaríkjanna, eitthvað sem stór hluti Íslendinga klórar sér í hausnum yfir í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×