Innlent

Innkalla vínarpylsur vegna aðskotahlutar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Neytendum sem eiga vöruna er bent á að skila þeim til fyrirtækisins eða í næstu Bónusverslun.
Neytendum sem eiga vöruna er bent á að skila þeim til fyrirtækisins eða í næstu Bónusverslun. vísir/stefán
Síld og fiskur ehf hefur þurft að innkalla tvær framleiðslulotur af Bónus vínarpylsum með þremur pökkunardagsetningum vegna aðskotahlutar sem fannst í einni pylsunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. 

Pökkunardagarnir eru eftirfarandi: 19.8.2015, 20.8.2015 og 21.8.2015. Neytendum sem eiga vöruna er bent á að skila þeim til fyrirtækisins eða í næstu Bónusverslun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×