Innlent

Innkalla kókosolíu frá Himneskt

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Aðskotahlutur fannst í einni krukku.
Aðskotahlutur fannst í einni krukku.
Aðföng hafa ákveðið að taka úr sölu og innkalla kókosolíu frá vörumerkinu Himneskt. Það eru 200 gramma krukkur en ástæða innköllunarinnar er að í einni krukku fannst aðskotahlutur. Innköllunin varðar eingöngu vörur sem eru merktar sem best fyrir dagsetninguna 31. júlí 2016, en það er áletrað ofan á lok krukkunnar.

Varan var í sölu í verslunum Bónus, Hagkaupa, Stórkaupa, matvöruverslununum KS, 10-11 og Gló Fákafeni. 

Viðskiptavinum verslananna sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Aðföng biðja viðskiptavini verslananna sem kunna að verða fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×