Innlent

Innbrotahrina í Reykjavík: Brotist inn í fimm bíla á tveimur tímum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Á milli klukkan 08:14 og 10:08 í morgun var brotist inn í fimm bíla í Vesturbæ, á Seltjarnarnesi og í Hlíðunum.
Á milli klukkan 08:14 og 10:08 í morgun var brotist inn í fimm bíla í Vesturbæ, á Seltjarnarnesi og í Hlíðunum. Vísir/Eyþór
Brotist var inn í fimm bíla á tæpum tveimur tímum í Vesturbæ, á Seltjarnarnesi og í Hlíðunum í morgun. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að fyrsta tilkynningin um innbrot í bifreið hafi komið klukkan 08:14 í morgun og var það í Hlíðunum.

Um fjörutíu mínútum síðar, eða klukkan 08:54, var tilkynnt um innbrot í tvo bíla í Vesturbænum. Klukkan 09:34 var svo tilkynnt um innbrot í bifreið á Seltjarnarnesi og klukkan 10:08 var tilkynnt um innbrot í bíl, nú aftur í Hlíðunum.

Eigandi eins bílsins deildi myndunum af honum í íbúagrúppu á Facebook. Búið var að brjóta rúðurnar í bílnum en lögreglan sagði eigandanum að það væri hrina innbrota í bíla í gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×