Innlent

Innanríkisráðherra segir aukin framlög fyrsta skrefið til eflingar lögreglu

Heimir Már Pétursson skrifar
Innanríkisráðherra segir að 400 milljóna króna aukaframlag til lögreglunnar á næsta ári sé fyrsta skrefið til nauðsynlegrar eflingar á löggæslu í landinu. Nokkrir þingmenn vöruðu við auknum valdheimildum til lögreglunnar og gegn almennum vopanburði hennar á Alþingi í dag.

Almennur stuðningur var við það á Alþingi í dag að fjölga í lögreglunni og bæta búnað hennar. Hins vegar var líka bent á að ekki bæri að taka ákvarðanir um auknar valdheimildir lögreglu í ótta og skugga hryðjuverkaárása.

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hóf sérumræðu um starfsumhverfi lögreglunnar á Alþingi í dag og sagði að nú þegar kjarasamningar lægju fyrir væri brýnt að skoða aðstæður lögreglunnar. „Þar ber fyrst að nefna mannafla lögreglunnar, búnað vald- og rannsóknarheimildir. Það er óþolandi staða fyrir alla að lögreglumönnum á vakt skuli hafa fækkað um rúmlega 80 á milli áranna 2007 og 2011,“ sagði Þorsteinn.

Á sama tíma hefði landsmönnum til að mynda fjölgað um 40 þúsund og verkefni lögreglu aukist á mörgum sviðum.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði að framlög til lögreglu hefði verið aukið um 500 milljónir á þessu ári og lagt væri til að framlög verði aukin um aðrar 400 milljónir á næsta ári.

„Þessi aukafjárveiting er skref í þá átt að efla löggæsluna. Þessir fjármunir verða bæði nýttir hér á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið. Við vitum að verkefni lögreglunnar hafa stóraukist, bæði í almennri löggæslu og eins vegna nýrra verkefna.Mikill straumur ferðamanna hefur að sjálfsöfðu líka aukið álag á lögregluna,“ sagði Ólöf. En það væri mikilvægt að taka allar ákvarðanir um lögregluna á grundvelli staðreynda.

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði að tryggja þyrfti lögreglu nauðsynlegan búnað og hældi innanríkisráðherra fyrir að hafa birt opinberlega reglur um vopnaburð lögreglunnar.

„Það er mjög mikilvægt fyrir okkur öll að það sé gagnsæi um þessar reglur. Leynimaðkkið sem verið hefur í kringum þær sögulega séð er engum til góðs og satt að segja stórhættulegt fyrir öryggi borgaranna,“ sagði Árni Páll.

Helgi Hrafn Gunnarsson, kafteinn Pírata, sagði nauðsynlegt að koma á eftirliti með lögreglu áður en valdheimildir hennar yrðu auknar og Birgitta Jónsdóttir samflokksmaður hans og þingflokksformaður varaði við áhrfum óttans í umræðunni.

„Við skulum ekki tapa okkur í óttanum. Styrkjum heldur almenna löggæslu. Ég er mjög sammála þeim sem hafa talað í þá veru,“ sagði Birgitta Jónsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×