Innlent

Innanlandsflugi aflýst

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Öllu flugi Flugfélag Íslands í kvöld hefur verið aflýst vegna veðurs.
Öllu flugi Flugfélag Íslands í kvöld hefur verið aflýst vegna veðurs. STÖÐ 2/BALDUR HRAFNKELL JÓNSSON
Flugfélag Íslands hefur aflýst öllu innanlandsflugi vegna veðurs. Í kvöld átti að fljúga til Akureyrar, Egilstaða, Reykjavíkur og Nuuk frá Reykjavík auk þess sem að fljúga átti til Reykjavíkur frá Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Nuuk.

Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélaginu er allt flug á morgun samkvæmt áætlun.


Tengdar fréttir

Hviður gætu farið upp í 50 metra á sekúndu

Hringveginum verður lokað klukkan 12 frá Hvolsvelli að Jökulsá á Breiðamerkursandi. Þá er búið að fella niður kennslu í Fjölbrautaskóla Suðurlands eftir hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×