Viðskipti innlent

Inkasso sér um innheimtu fyrir Grindavíkurbæ

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá undirrituninni í Grindavík. Frá vinstri: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, Georg Andersen framkvæmdastjóri Inkasso og Jóhann Hannesson viðskiptastjóri Inkasso.
Frá undirrituninni í Grindavík. Frá vinstri: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, Georg Andersen framkvæmdastjóri Inkasso og Jóhann Hannesson viðskiptastjóri Inkasso.
Grindavíkurbær hefur undirritað samning við innheimtufyrirtækið Inkasso. Fyrirtækið mun framvegis sjá um alla innheimtu fyrir sveitarfélagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavíkurbæ.

„Markmið Grindavíkurbæjar með samningi þessum við Inkasso er að lækka kostnað greiðenda vegna vanskilainnheimtu samhliða því að tryggja góðan innheimtuárangur. Einnig að milliinnheimtukostnaður lækki verulega,“ segir Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindarvíkurbæjar. „Það er afar mikilvægt fyrir Grindavíkurbæ og þar með allt samfélagið í heild að innheimta skatta og gjalda sé sem skilvísust. Það er hagur allra.“

Í tilkynningunni kemur fram að markmið Inkasso sé að bjóða upp á nýjar leiðir í innheimtuþjónustu og bjóða uppá meiri sveigjanleika og lægri kostnað fyrir sveitarfélög og fyrirtæki.

„Grindavíkurbær er gríðarlega öflugt sveitarfélag og hefur á seinustu árum markvisst byggt upp góða þjónustu fyrir bæjarbúa og þar er að finna öflugt atvinnulíf í sjávarútvegi, verslun og þjónustu. Það er okkur sönn ánægja að starfa með sveitarfélaginu  með það að markmiði að veita íbúum þess betri þjónustu og lækka kostnað,“ segir Georg Andersen framkvæmdastjóri Inkasso.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×