Bíó og sjónvarp

Ingvar hyggur á hefndir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir sýnir fyrst allra miðla sex plaköt fyrir kvikmyndina Borgríki II. Á fjórða plakatinu er Ingvar E. Sigurðsson.

Ingvar leikur Gunnar, fyrrverandi glæpakonung sem missti allt þegar erlend glæpasamtök grófu undan veldi hans. Eftir að hafa náð botni eftir tveggja ára eiturlyfjaneyslu og þvæling um heiminn, hyggur hann á hefndir.

Borgríki II - Blóð hraustra manna er sjálfstætt framhald  kvikmyndarinnar Borgríki sem kom út síðla árs 2011. Í helstu hlutverkum eru Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Sigurður Sigurjónsson, Zlatko Krickic og Hilmir Snær Guðnason.

Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn úr myndinni en hún verður frumsýnd í október. Vísir frumsýnir síðan nýja stiklu næsta þriðjudag.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×