Íslenski boltinn

Ingimundur og Jóhannes Karl sömdu við Fylki

Frá undirskriftinni í dag.
Frá undirskriftinni í dag. vísir/ernir
Fylkismenn héldu blaðamannafund í hádeginu þar sem þeir kynntu til leiks tvo nýja leikmenn.

Nýju mennirnir eru þeir Ingimundur Níels Óskarsson og Jóhannes Karl Guðjónsson. Ingimundur er að koma aftur til félagsins eftir tveggja ára dvöl hjá FH. Hann skoraði 4 mörk í 20 leikjum í sumar. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.

Jóhannes Karl skrifaði aftur á móti undir eins árs samning við Fylki en hann gæti lagt skóna á hilluna í lok tímabilsins. Jóhannes lék með Fram síðasta sumar og olli leikur hans þar talsverðum vonbrigðum.

Bakvörðurinn Tómas Joð Þorsteinsson skrifaði svo undir nýjan tveggja ára samning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×