Ingibjörg Sólrún enn með heilaæxli - myndband 29. september 2010 20:36 „
Það tókst aldrei að fjarlægja allt æxlið og því er hluti af því eftir," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Hún var í viðtali við Ísland í dag í kvöld þar sem hún ræddi um niðurstöðu Alþingis vegna ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Þá var einnig kosið um að ákæra Ingibjörgu en sú tillaga var felld. Ingibjörg greindist með heilaæxli á svipuðum tíma og hrunið gekk yfir Ísland árið 2008. Hún þurfti að gangast undir aðgerðir vegna þess. Svo virðist sem læknum hafi ekki tekist að fjarlægja allt æxlið. „Það er fylgst með því og á meðan það stækkar ekki þá er það í lagi," segir Ingibjörg sem segist þó líða ágætlega. „Mér hefur liðið vel síðan ég steig út úr stjórnmálunum." segir Ingibjörg sem sér ekki eftir þeirri ákvörðun og í raun hafi hún haft góðar heilsufarslegar afleiðingar fyrir hana. „Það er nöturlegt að segja það en en ég komst að því að lífið er talsvert betra fyrir utan stjórnmálin," sagði Ingibjörg Sólrún sem segist ekki ætla að snúa aftur í stjórnmálin. Hún sé búin að fá nóg í bili. Spurð hvort henni þætti ekki óþægilegt að vita af æxlinu í höfði sér svaraði Ingibjörg: „Neinei. Það má öllu venjast."
Tengdar fréttir Ingibjörg Sólrún: Mér finnst þetta dapurlegt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, sakar forystu Vinstri grænna um pólitíska ofsóknir í Landsdómsmálinu og segir að ákærunar standist ekki lög. 29. september 2010 18:35 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira
Ingibjörg Sólrún: Mér finnst þetta dapurlegt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, sakar forystu Vinstri grænna um pólitíska ofsóknir í Landsdómsmálinu og segir að ákærunar standist ekki lög. 29. september 2010 18:35