Handbolti

Ingibjörg hjá FH næstu tvö árin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ingibjörg Pálmadóttir
Ingibjörg Pálmadóttir Mynd/FH
Handknattleikskonan Ingibjörg Pálmadóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við FH. Ingibjörg, sem getur leyst nær allar stöður á vellinum, er uppalin hjá Hafnarfjarðarliðinu og hefur leikið allan sinn feril með því.

„Stjórn handknattleiksdeildar FH lýsir yfir mikilli ánægju með að Ingibjörg hafi ákveðið að framlengja samning sinn við félagið og taka slaginn með liðinu næstu árin,“ segir í fréttatilkynningu frá FH.

FH hafnaði í 6. sæti Olís deildarinnar á síðasta tímabili. Hafnarfjarðarliðið tapaði svo fyrir ÍBV í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×