Körfubolti

Ingi sýnir breikdans | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var að sjálfsögðu í sjöunda himni eftir að stelpurnar hans tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Haukum í oddaleik á Ásvöllum í kvöld.

Þetta er þriðja árið í röð sem Snæfell verður Íslandsmeistari en liðið er einnig ríkjandi bikarmeistari.

Eftir leikinn í kvöld þakkaði Ingi hinum fjölmörgu stuðningsmönnum Snæfells sem lögðu leið sína í Hafnarfjörðinn fyrir stuðninginn og bauð síðan upp á svokallaðan „breikdans“ í kaupbæti.

Þjálfarinn snjalli sýndi lipur tilþrif á parketinu eins og sjá má í myndbandinu hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×