Fótbolti

Infantino segist ekki hafa lofað Bandaríkjunum HM fyrir hjálpina

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gianni Infantino þakkar Sunil Gulati fyrir hjálpina á föstudaginn.
Gianni Infantino þakkar Sunil Gulati fyrir hjálpina á föstudaginn. vísir/getty
Gianni Infantino var kosinn nýr forseti FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, síðastliðið föstudagskvöld.  Eftir að fá 88 atkvæði í fyrstu umferð kosninganna fékk hann 115 atkvæði í annarri umferð þegar aðeins þurfti 104 atkvæði til að vera kosinn forseti.

Infantino getur að miklu leyti þakkað Sunil Gulati, forseta bandaríska knattspyrnusambandsins, fyrir sigurinn, en samkvæmt fréttamönnum á staðnum fór hann út um allt gólf að safna atkvæðum fyrir Infantino eftir fyrstu kosningu.

Sjá einnig:KSÍ studdi Infantino til valda

Gulati fór ekkert í felur með það, að Bandaríkin studdu Prince Ali Bin Al Hussein frá Jórdan. En þegar ljóst var að hann átti ekki möguleika vildu Bandaríkjamenn frekar fá Infantino til starfa en Sjeik Salman frá Barein.

Greint var frá því á föstudagskvöldið að Gulati safnaði haug af atkvæðum fyrir Infantino fyrir seinni umferðina, en talið er að hann hafi komið öllum ellefu þjóðum Eyjaálfu á Infantino-vagninn auk nokkurra í Norður og Mið-Ameríku og Karíbahafinu.

Aðspurður af fréttamanni BBC hvort hann hafi lofað Gulati að hjálpa Bandaríkjunum að fá heimsmeistaramótið í fótbolta 2026 að launum svaraði Infantino: „Nei, svo sannarlega ekki.“

Infantino bætti við sig 27 atkvæðum í seinni umferðinni og fór úr 88 í 115, en Sjeik Salman, forseti knattspyrnusambands Asíu, bætti aðeins við sig þremur atkvæðum og fór úr 85 atkvæðum í 88 í seinni umferðinni.


Tengdar fréttir

Kosið um nýjan forseta FIFA í dag

Alþjóðaknattspyrnusambandið reynir að taka fyrsta skrefið í átt að nýrri og bjartari framtíð sinni þegar sambandið heldur forsetakosningar sínar í dag.

Infantino kjörinn forseti FIFA

Gianni Infantino hafði betur gegn Sjeik Salman, forseta knattspyrnusambands Asíu, í annarri umferð kjörsins.

Geir um Infantino: Fyllist mikilli von

Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ, var létt þegar ljóst varð að Svisslendingurinn Gianni Infantino hafði betur gegn Sjeik Salman í forsetakjöri Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×