Viðskipti erlent

Indland sigldi fram úr Bretum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Sölumaður telur peninga á gangstétt í Mumbaí á Indlandi.
Sölumaður telur peninga á gangstétt í Mumbaí á Indlandi. vísir/epa
Indland er orðið sjötta stærsta hagkerfi heims, og siglir þar með fram úr Bretlandi sem er komið í sjöunda sætið.

Mikill hagvöxtur hefur verið á Indlandi í heilan aldarfjórðung, en efnahagsvandræði Breta vegna væntanlegrar útgöngu úr Evrópusambandinu vega þarna þungt.

Enn munar þó ekki miklu á stærð breska og indverska hagkerfisins, þannig að vegna gengisflökts gætu þau haldið áfram að skiptast á fimmta og sjötta sætinu á næstunni.

Bandaríkin eru sem fyrr stærsta hagkerfi heims, svo Kína, Japan, Þýskaland og Frakkland. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×