Lífið

Indía Salvör talar um útlitið við Vogue

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Indía.
Indía. vísir/getty
Íslenska leik- og listakonan Indía Salvör Menuez er í viðtali við vefsíðu tískutímaritsins Vogue ásamt ljósmyndaranum Petru Collins. Deila þær með ritinu hvaða snyrtivörur þær nota en Indía segist gera voðalega lítið við hár sitt.

„Hárið mitt er í anda sjöunda og áttunda áratugarins bara út af því að það er sítt og ég geri ekkert við það heldur. Það er frekar hippalegt og náttúrulegt,“ segir Indía. Hún bætir við að hún noti ekki farða.

„Ég hætti að nota förðunarvörur í miðskóla og núna vil ég vera heilbrigð og fersk sem þýðir að maður getur ekki notað aukatíma í að setja á sig lög af farða. Ef ég nota eitthvað er það eitthvað kjánalegt eins og svartur varalitur eða fullt af glimmeri. Og þær vörur eru gerðar af merki eins og Obsessive Compulsive sem láta sér annt um dýravernd.“

Indía segist standa á haus einu sinni á dag og að hún noti nánast eingöngu náttúrulegar vörur. Nefnir hún til að mynda vörur Andreu Helgadóttur.

Viðtali við Indíu má lesa hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×