Glamour

Indía og Vogue hvetja fólk til að kjósa

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Hvað er það heitasta í tískuheiminum um þessar mundir að mati Vogue? Að nýta kosningaréttinn. Til að vekja á þessu athygli hefur tímaritið sett af stað herferðina #runwaytoregister þar sem leikstjórarnir Cass Bird og Shane Sigler hafa fengið til liðs við sig helstu stjörnur tískuheimsins til að hvetja fólk til að kjósa, og þar er meðal annars að finna Indiu Menuez, leikkonu, fyrirsætur og forsíðustúlku aprílblaðs Glamour sælla minninga. 

Í Bandaríkjunum eru forsetakosningar framundan þar sem Hillary Clinton og Donald Trump eru   í framboði, fyrstu kappræður fara einmitt fram í kvöld en myndböndin eiga alveg jafn vel við hér heima þar sem alþingiskosningar fara fram 29.október næstkomandi. 

Svo við vitnum í orð Indíu í myndbandi: „Ef eitthvað skiptir þig máli, kjóstu. Því það mun hafa áhrif á þig og alla í kringum þig.“


Tengdar fréttir






×