Glamour

Ilmvatnsglasið eins og köttur

Ritstjórn skrifar
Stílistinn frægi Grace Goddington sem nýlega kvaddi Vogue eftir fjölmörg farsæl ár hjá tímaritinu fræga, hefur nú frumsýnt sitt fyrsta verkefni undir eigin nafni.

Það er ilmvatn sem hún þróaði í samstarfi við Comme des Garcons og heitir einfaldlega Grace by Grace Goddington. Ilmurinn sjálfur er innblásinn af dálæti Grace af rósum og flaskan er siðan samstarfsverkefni hennar og listamannsins Fabien Baron en köttur leikur þar lykilhlutverki. Þeir sem hafa fylgst með verkum Grace i gegnum tíðina þekkja að hún einmitt elskar ketti. Fagurt glas sem eitt og sér er stofustáss. 

Ilmvatnið fer í sölu út um allan heim þann 19.apríl næstkomandi og einnig á vefsíðu hennar hér. 










×