Lífið

Ilmkerti frá KFC slær í gegn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ilmkertið sem aðdáendur KFC slógust um á dögunum.
Ilmkertið sem aðdáendur KFC slógust um á dögunum. mynd/facebook
Það er spurning hvort að aðdáendur KFC á Íslandi yrðu jafn spenntir og aðdáendur KFC í Nýja-Sjálandi ef þessi sívinsæli kjúklingastaður myndi bjóða upp á svipaðan leik hér eins og gert var á nýsjálenskri Facebook-síðu KFC í liðinni viku.

KFC í Nýja-Sjálandi ákvað að gefa út eitt ilmkerti með ilm af steiktum kjúkling og gefa einum heppnum KFC-aðdáanda kertið í verðlaun í Facebook-leik.

Það er skemmst frá því að segja að kertið sló í gegn en Facebook-færslan fékk yfir þrjú þúsund læk og um 15 þúsund manns settu athugasemd undir hana. Það var þó aðeins einn aðdáandi KFC sem hafði heppnina með sér og vann kertið góða en hvort það fari í fjöldaframleiðslu liggur ekki fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×