Sport

Illvígar deilur útkljáðar í nótt | Slógust á blaðamannafundi

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Í kvöld fer fram risabardagi í UFC þegar þeir Jon Jones og Daniel Cormier mætast. Það er óhætt að segja að lítill kærleikur sé þeirra á milli og er rígurinn á milli þeirra einn sá mesti í sögu UFC.

Illindin eiga rætur sínar að rekja til þeirra fyrsta fundar. Jon Jones gekk upp að Daniel Cormier og sagðist viss um að hann gæti tekið Cormier niður. Cormier er framúrskarandi glímumaður og keppti í tvígang á Ólympíuleikunum í glímu og tók því þessum orðum Jones illa.

Síðan þá hefur rígurinn stækkað og stækkað og hafa þeir um nokkurt skeið sent kaldar kveðjur sín á milli í fjölmiðlum. Það var svo í ágúst sem allt varð vitlaust þegar þeir slógust á blaðamannafundi. Áhuginn fyrir bardaganum var mikill fyrir en margfaldaðist eftir slagsmálin.

Upphaflega átti bardaginn að fara fram í september en vegna meiðsla Jones var bardaganum frestað til 3. janúar.  Í millitíðinni hafa kapparnir verið duglegir að hella olíu á eldinn og haldið áfram að ausa fúkyrðum hvor yfir annan.

Þetta verður áttunda titilvörn Jon Jones en hann hefur verið léttþungavigtarmeistari UFC frá 2011. Daniel Cormier er ósigraður í 15 bardögum og það sama má segja um Jones (eina tap Jones er þegar hann var dæmdur úr leik gegn Matt Hamill vegna ólöglegra högga en flestir eru sammála að um dómaramistök hafi verið að ræða).

Jones og Cormier munu loksins fá að útkljá sín mál í kvöld þegar þeir mætast í aðalbardaganum á UFC 182. Bein útsending frá bardagakvöldinu hefst kl 3 á Stöð 2 Sport.

MMA

Tengdar fréttir

Jon Jones - Besti bardagamaður heims

Jon Jones er ríkjandi meistarinn í léttþungavigt UFC í dag. Þessi 26 ára bardagamaður er einfaldlega besti MMA bardagamaður heims um þessar mundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×