Innlent

Illugi segist hafa selt íbúðina í maí 2013

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Afsal að eigninni var þinglýst í júlí á síðasta ári en Illugi segir kaupsamninginn hafa verið gerðan í lok maí árið 2013.
Afsal að eigninni var þinglýst í júlí á síðasta ári en Illugi segir kaupsamninginn hafa verið gerðan í lok maí árið 2013. Vísir
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, segist hafa selt íbúð sína við Ránargötu í Reykjavík í lok maí árið 2013. Vísir greindi frá því um helgina að kaupin hafi samkvæmt fasteignaskrá átt sér stað í júlí á síðasta ári en að afhending eignarinnar hafi átt sér stað tæpum sjö mánuðum fyrr.



Kaupsamningnum ekki þinglýst

„Dagsetning kaupsamnings er 30. maí 2013 og afhending í lok árs 2013,“ segir í skriflegu svari Illuga við fyrirspurn fréttastofu. Kaupsamningnum var ekki þinglýst samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu en afsal eignarinnar var þinglýst í júlí á síðasta ári, tæpu ári eftir kaupin.

Sjá einnig: Borgar 230 þúsund krónur í leigu á mánuði



Það eru einu opinberu gögnin sem liggja fyrir um viðskiptin auk upplýsinga úr ársreikningi félagsins sem keypti eignina. Það félag er í eigu Hauks Harðarsonar, stjórnarformanns Orku Energy. Félagið var áður í eigu Illuga en í ársreikningi vegna 2013 kemur fram að Haukur eigi 100 prósent hlutafjár í félaginu.



Tók yfir tryggingarbréf

Á Facebook-síðu sinni í dag sagði Illugi að íbúðin hefði verið seld fyrir 53,5 milljónir króna. Samkvæmt afsali eignarinnar tók félag Hauks hins vegar yfir 55 milljóna króna skuldir með eigninni.



Aðspurður um mismuninn á þessum upphæðum segir Illugi í svarinu: „Á söludegi eignarinnar voru tvö skuldabréf áhvílandi samtals að fjárhæð 34,5 milljón auk þess var tryggingarbréf áhvílandi á 3ja veðrétti sem endurspelgar ekki stöðu undirliggjandi skuldar á söludegi.“



Haukur ekki innlendur aðili

Fréttastofa óskaði einnig eftir skýringum á ummælum Illuga á Alþingi 13. apríl síðastliðinn þar sem hann sagði að engir íslenskir aðilar ættu í Orku Energy.



„Ég sagði það hér áðan, það er enginn íslenskur aðili sem á þessi fyrirtæki, þetta eru allt aðilar sem eru annaðhvort búsettir erlendis eða eru erlendir aðilar, reyndar á þessum tíma er þetta í meirihlutaeign erlendra aðila,“ sagði ráðherrann í þinginu. Fyrir liggur hins vegar að Haukur Harðarson eigi í fyrirtækinu.



Aðspurður um þetta atriði segir Illugi að Haukur búi og starfi erlendis. Samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá er Haukur skráður í Víetnam.


Tengdar fréttir

Sagði ekkert óeðlilegt við samband sitt við Orku Energy

Illugi Gunnarsson seldi stjórnarformanni Orku Energy ehf. fyrirtæki og húsnæði sitt við Ránargötu sem hann nú leigir eftir að hann varð ráðherra. Illugi vann áður ráðgjafarstörf fyrir OE vegna umsvifa þess í Asíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×