Innlent

Illugi segir PISA-niðurstöðu kalla á að­gerðir

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Illugi Gunnarsson, starfandi menntamálaráðherra.
Illugi Gunnarsson, starfandi menntamálaráðherra. Vísir/Friðrik Þór

Illugi Gunnarsson, starfandi menntamálaráðherra, segir niðurstöður nýrrar PISA-könnunar vera vonbrigði. Ljóst sé að grípa þurfi til aðgerða til þess að snúa þróuninni en við en staða íslenskra nemendur hefur aldrei verið verri.



Ísland er á niðurleið í stærðfræðilæsi, lesskilningi og vísindalæsi samkvæmt PISA-könununni sem nemendur í 10. bekk tóku þátt í vorið 2015 í sjötta sinn. Er Ísland undir OECD-meðaltali í þessum flokkum.



„Það eru vonbrigði fyrir okkur að staðan sé þessi. Þetta er þróun sem staðið hefur yfir í nokkuð langan tíma, alveg frá 2000,“ segir Illugi í samtali við fréttastofu 365. Ljóst sé að grípa þurfi til aðgerða.



„Við höfum þegar gripið til aðgerða hvað varðar læsið. Við munum ekki sjá niðurstöðurnar úr því fyrr en eftir nokkur ár. Allt bendir þó til þess að það sé að ganga vel. Við munum þurfa að grípa til svipaðra aðgerða í stærfræði og náttúruvísindum.“



Illugi segir einnig að íslenska menntakerfið þurfi að standast snúning við þau lönd sem Ísland beri sig saman við en öll Norðurlöndin eru ofar á lista en Ísland.



„Menntakerfið er grundvöllur undir lífskjör í landinu og okkar menntakerfi þarf að standast snúninginn við menntakerfi annarra landa þar sem við viljum hafa í það minnsta jafn góð lifskjör og eru þar.“



PISA-rannsóknin er framkvæmd á þriggja ára fresti og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.



Helstu niðurstöður í PISA 2015 er varðar Ísland má sjá í viðhengi (PDF) hér að neðan.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×