Innlent

Illugi Gunnarsson: Þú kannski flytur ræðu, það væri æðislegt

„Ég er eindreginn þeirrar skoðunar og með fullri virðingu fyrir Guðbjarti vini mínum þá held ég að hann hafi ekkert verið helmingi betri en við Eygló...en mjög góður maður,“ sagði Kristján Þór þegar hann og Eygló tóku við lyklavöldum af fráfarandi ráðherra.
„Ég er eindreginn þeirrar skoðunar og með fullri virðingu fyrir Guðbjarti vini mínum þá held ég að hann hafi ekkert verið helmingi betri en við Eygló...en mjög góður maður,“ sagði Kristján Þór þegar hann og Eygló tóku við lyklavöldum af fráfarandi ráðherra.

Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðiflokks kom saman í dag á sínum fyrsta formlega fundi í stjórnarráðshúsinu. Sex nýir ráðherrar hófu störf í morgun þegar tóku við lyklavöldum í sínum ráðuneytum. Höskuldur Kári Schram fylgdist með.

Lyklaskiptin hófust í gær þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, tók við forsætisráðuneytinu, Bjarni Benediktsson við fjármálaráðuneytinu og Gunnar Bragi Sveinsson við utanríkisráðuneytinu.

Dagskráin hófst á ný snemma í morgun þegar Steingrímur J. Sigfússon tók á móti tveimur nýjum ráðherrum í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Sigurður Ingi Jóhannsson er nýr landbúnaðar og sjávarútvegsráðherra og Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra.

„Nú þurfum við bara að koma okkur að verki og láta margumrædd hjól atvinnulífsins fara snúast að fullum krafti,“ sagði Ragnheiður.

Steingrímur mætti á sínum gamla Volvo líkt og hann gerði þegar vinstri stjórnin tók við völdum árið 2009.

Fréttamaður: þú komst á grænum volvo inn í þessa ríkisstjórn ef svo má segja muntu fara á þessum sama gamla volvo út úr ríkisstjórn?

„já ég er á honum í dag og var á honum í gær. það hefur alltaf verið mér persónulega til heilla að fara í mikilvægar ferðir á gamla volvo,“ svaraði Steingrímur. Og að svo mæltu ók steingrímur af stað út í óvissuna.

Katrín Jakobsdóttir var næst en hún tók móti Illuga Gunnarssyni í mennta- og menningamálaráðuneytinu. Lyklaskiptin fóru fram með afar óformlegum hætti.

„ja hvernig eigum við að gera þetta.....kannski þú myndir flytja ræðu það væri æðislegt,“ sagði Illugi.

Umhverfisráðuneytið fer undir sama hatt og sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið. Svandís Svavarsdóttir afhenti því Sigurði Inga lyklavöldin.

Hanna Birna Kristjánsdóttir tók við innanríkisráðuneytinu af Ögmundi Jónassyni.

Guðbjartur Hannesson þurfti líkt og Steingrímur að taka móti tveimur nýjum ráðherrum. Eygló Harðardóttir er nýr félagsmálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra.

„Fyrir okkur framsóknarmenn þá eru húsnæðismálin náttúrulega stóra málið þannig að við erum mjög glöð yfir því að vera með þennan málaflokk,“ sagði Eygló við þetta tækifæri.

Fréttamaður: Hingað koma tveir ráðherrar til að taka við af einum, er það skynsamleg ákvörðun að hafa tvo ráðherra hérna?

„Ég er eindreginn þeirrar skoðunar og með fullri virðingu fyrir Guðbjarti vini mínum þá held ég að hann hafi ekkert verið helmingi betri en við Eygló...en mjög góður maður,“ sagði Kristján Þór.

Ríkisstjórnin Framsóknar og sjálfstæðisflokks kom svo saman í stjórnaráðsshúsinu í dag á sínum fyrsta formlega fundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×