Menning

Illska snýr óvænt aftur á fjalirnar

Tinni Sveinsson skrifar
Verkið Illska var frumsýnt í vetur.
Verkið Illska var frumsýnt í vetur.
Vegna breytinga á dagskrá Borgarleikhússins losnaði tími á litla sviði leikhússins og var því ákveðið að bjóða verkinu Illsku aftur á svið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikhópnum Óskabörnum ógæfunnar, sem stendur að sýningunni.

„Illska, sem byggð er á samnefndri verðlaunaskáldsögu Eiríks Norðdahl, var sýnd síðasta vetur við miklar vinsældir.  Gangrýnendur voru á einu máli um ágæti sýningarinnar og var hún meðal annars kölluð mikilvægasta leiksýning ársins,“ segir í tilkynningunni.

„Illska hlaut sex tilnefningar til Grímunnar: Sýning ársins, leikrit ársins, leikstjóri ársins, leikari í aðalhlutverki, leikari í aukahlutverki og danshöfundur ársins. Sýningin tekur á mikilvægum málefnum í íslensku samfélagi dagsins í dag svo sem rasisma, popúlisma og uppgangi hægri öfgaafla í heiminum. Og þar sem samfélagið er alltaf að breytast mun sýningin halda áfram að þróast og breytast líkt og hún gerði meðan hún var í sýningu.“

Leikstjóri sýningarinnar er Vignir Rafn Valþórsson. Leikarar eru Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Hannes Óli Ágústsson. Leikmynd er eftir Brynju Björnsdóttur, lýsing eftir Jóhann Friðrik Ágústsson og danshöfundur er Brogan Davison.

Hér fyrir neðan má sjá þegar kíkt var baksviðs í Borgarleikhúsinu í kvöldfréttum Stöðvar 2, rétt fyrir frumsýningu verksins.


Tengdar fréttir

Skuggi sögunnar

Þreytandi kaldhæðni ræður ríkjum í Illsku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×