Innlent

Illdeilur innan Vinnslustöðvarinnar rísa á ný

Svavar Hávarðsson skrifar
Bræðurnir vilja endurnýja skip og tæki – stjórnarformaður segir deilur standa í vegi fyrir því að það sé gert.
Bræðurnir vilja endurnýja skip og tæki – stjórnarformaður segir deilur standa í vegi fyrir því að það sé gert. Fréttablaðið/Óskar
Stilla útgerð ehf., sem fer með minnihlutaeign í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum (VSV), hyggst stefna öðrum hluthöfum félagsins vegna sameiningar við útgerðina Ufsaberg, og kaupa á fyrirtækinu Eyjaís.

Þetta lá fyrir eftir hluthafafund VSV á miðvikudag þar sem forsvarsmenn Stillu lögðu til, og fengu samþykkt í krafti laga um hlutafélög, að einstaklingum og félögum sem fara með meirihlutann yrði stefnt í nafni Vinnslustöðvarinnar sjálfrar til að greiða skaðabætur vegna tjóns sem þeir hefðu orðið fyrir við sameiningu og kaup á félögunum tveimur í Eyjum. Eigendur Stillu, bræðurnir Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir, vilja meina að viðskiptin valdi VSV tjóni, og einstaklingar og félög sem mynda meirihlutann hafi hag af viðskiptunum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar, segir þá bræður vilja bætur fyrir tjón sem þeir telja sig verða fyrir – nokkuð sem aðrir hluthafar geti ekki fallist á að sé raunin. „Þvert á móti tel ég viðskiptin mjög hagfelld fyrir félagið,“ segir Guðmundur og bætir við að átökin innan VSV standi félaginu fyrir þrifum í allri eðlilegri uppbyggingu sjávarútvegsfyrirtækis.

„Það að hóta meðeigendum sínum með þessum hætti held ég að sé án fordæma,“ segir Guðmundur og segir deginum ljósara að hluthafalögin séu meingölluð. Hér vísar Guðmundur til þess að samkvæmt hluthafalögum mega eigendur meirihluta hlutafjár ekki taka þátt í atkvæðagreiðslu vegna mála sem beinast gegn þeim sjálfum, og þannig hafi minnihlutinn gerræðislegt vald til að ná sínu fram.

Spurður hvort málarekstur bræðranna sé til þess að koma í veg fyrir að hlutfjáreign þeirra þynnist út, segir Guðmundur að málið líti þannig út fyrir sér enda hafi þeir lengi reynt að auka hlut sinn í VSV, en enginn í hópi Vestmanneyinganna hafi viljað selja.

Guðmundur í Brimi
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims og stjórnarmaður í VSV, segir að málið liggi ljóst fyrir og snúist um tvennt. VSV sé metin allt of lágt, og því hafi verið selt á undirverði. „Svo teljum við að það sé hægt að reka Vinnslustöðina miklu betur. En meirihluti hluthafa hefur ekki viljað fara eftir okkar tillögum, t.d. varðandi fjárfestingu í skipum og tækjum,“ segir Guðmundur og nefnir að stór sjávarútvegsfyrirtæki, sambærileg við Vinnslustöðina, skili betri afkomu. Því séu möguleikar félagsins vannýttir, og gömul atvinnutæki hluti af þeirri skýringu.

Framhald áralangra átaka innan VSV

Tillaga Stillumanna er í raun nýr kafli í átökum innan félagsins sem á sér langa sögu. Um eru að ræða átök eigenda Stillu sem eiga ríflega 30% í VSV, Guðmundar Kristjánssonar, sem er oftast kenndur við útgerð sína Brim, og bróður hans Hjálmars, við hóp Vestmannaeyinga sem á tæp 70%. Átökin náðu hámarki þegar VSV keypti hluti í Ufsabergi árin 2008 og 2011, gegn vilja bræðranna. Þeir fóru með málið fyrir dómstóla og stefndu þáverandi stjórnarformanni ásamt þremur úr eigendahópi félagsins. Þeir féllu síðar frá þeirri kröfu.

Í mars 2013 ógilti Hæstiréttur samruna VSV og félaganna tveggja; ný samrunaáætlun var samþykkt af VSV og Ufsabergi í sumar og var samþykkt á fundinum á miðvikudag. Málið er því í raun að fara annan hring.

Eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi

Vinnslustöðin er meðal fimm stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins, með um 250 fastráðna starfsmenn.

Fyrirtækið gerir út níu skip til uppsjávar-, tog- og netaveiða og starfrækir fjölbreytta landvinnslu.

Aflaheimildir fyrirtækisins eru um 18.000 þorskígildistonn, eða 4,27% af heildarafla (2013).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×