Lífið

Illa farnir - Dagur 4: Drauma jeppasafarí

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábær ferð hjá þeim félögum.
Frábær ferð hjá þeim félögum. vísir
Fjórði þátturinn af sjálfstæðu framhaldi af Illa förnum er kominn á Vísi. Í fyrri seríunni ferðuðust þeir Davíð og Binni um Ísland í 16 þátta seríu sem sýnd var við góðan orðstír seinasta vetur hér á Vísi.

Nú eru strákarnir komnir út fyrir landssteinanna og mættir til Tyrklands til að þefa uppi ný ævintýri og fjör.

Um er að ræða einskonar vídeóblogg þar sem þeir félagarnir tóku upp hvern dag fyrir sig. Í þessum þætti skelltu þeir félagarnir sér í jeppasafarí og skemmtu sér greinilega virkilega vel. Tyrkland fór án efa virkilega vel með þessa drengi.  

Fullt af skemmtilegu efni í nýjasta þættinum af Illa förnum, þáttur sem kemur þér í gegnum mánudaginn.

Samtals verða þetta 5 þættir frá Tyrklands för strákanna, þættirnir koma inn á mánudögum næstu vikurnar hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×