Lífið

Illa Farnir – Dagur 1: „Þú ert ennþá ofvirkur krakki“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það var greinilega mikið stuð á þeim félögunum.
Það var greinilega mikið stuð á þeim félögunum. vísir
Fyrsti þáttur af sjálfstæðu framhaldi af Illa förnum er hafinn á Vísi. Í fyrri seríunni ferðuðust þeir Davíð og Binni um Ísland í 16 þátta seríu sem sýnd var við góðan orðstír seinasta vetur hér á Vísi.

Nú eru strákarnir komnir út fyrir landssteinanna og mættir til Tyrklands til að þefa uppi ný ævintýri og fjör.

Um er að ræða einskonar vídeóblogg þar sem þeir félagarnir tóku upp hvern dag fyrir sig.

Í þessum fyrsta þætti komu þeir á hótelið eftir 16 tíma ferðalag og fóru í tyrkneskt bað þar sem heimamaðurinn nostraði við drengina. Þeir skelltu sér í heilnudd, borið var á þá maska og voru þeir þrifnir í bak og fyrir með froðukodda.

Einnig kíktu þeir í sundlaugagarðinn og prufukeyrðu flestar af þeim 15 rennibrautum sem voru á hótelinu.

Samtals verða þetta 5 þættir frá Tyrklands för strákanna, þættirnir koma inn á mánudögum næstu vikurnar hér á Vísi. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×