Viðskipti erlent

IKEA losar sig við sexkantinn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það fer hver að verða síðastur að bera sexkantana augum í húsakynnum IKEA í Kauptúni.
Það fer hver að verða síðastur að bera sexkantana augum í húsakynnum IKEA í Kauptúni. VÍSIR/ANTON BRINK
Sænskir miðlar greina nú frá því að húsgagnarisinn IKEA hafi í hyggju að draga stórlega úr vægi sexkantsins sem hefur verið órjúfanlegur þáttur í uppsetningu á vörum fyrirtæksins í áraraðir.

IKEA hafi þessi í stað sett stefnuna á að húsgögnin fyrirtækisins muni í auknum mæli verða smellt saman - án aðkomu nokkurra verkfæra.

Það verði því ekki einungis sexkanturinn sem muni brátt heyra sögunni til heldur muni pokarnir sem innihalda skrúfur í mismunandi stærðum einnig hverfa á braut.

Forstjóri IKEA í Svíþjóð, Jesper Brodin, segir í samtali við Smålänningen og Smålandsposten að þessi breyting muni spara viðskiptavinum dágóðan tíma við uppsetningu húsgagna fyrirtækisins.

„Í prófunum tók það um 25 mínútur að skrúfa saman húsgagn að meðaltali en einungis um 3-4 mínútur þegar þeim var smellt saman,“ segir Brodin. 

Hann segir að það séu einnig fleiri breytingar í vændum hjá fyrirtækinu. Það hafi í hyggju að breyta framleiðsluaðferðum sínum þannig að þeim muni svipa meira til þeirra sem þekkist í bílaiðnaðinum. Það gæti komið til með að spara viðskiptavinum töluverðar upphæðir og nefnir hann í því samhengi um 25-30%. Þá séu nýir sófar á teikniborðinu.

Hér að neðan má svo sjá eftirminnilegt atriði úr Áramótaskaupinu 2013. Sterklega má gera ráð fyrir því að persóna Ara Eldjárns muni sakna sexkantsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×