Íhuga að sækja rétt sinn vegna innheimtu sykurskatts 20. maí 2015 09:54 Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ. vísir/stefán
Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) telja fyrirkomulag við innheimtu sykurskatts hér á landi hafa falið í sér mismunun á milli innlendra framleiðenda og innflytjenda. Vegna þessa segir SVÞ að innflytjendur gætu átt bótarétt á hendur íslenskum stjórnvöldum sökum tjóns sem þeir kunna af hafa orðið fyrir vegna þessarar mismununar. Sykurskatturinn var aflagður um síðustu áramót þegar lög um vörugjald voru felld niður. „Eftir standa þó álitamál um hvort þáverandi innheimta sykurskattsins hafi falið í sér mismunum hvað varðar innheimtu þeirra gjalda,“ segir í tilkynningu frá SVÞ. SVÞ segja að mismunun hafi falist í að innlendum framleiðendum hafi staðið til boða að greiða umrædd vörugjöld eftir á og í samræmi við það magn sem sannarlega var nýtt hverju sinni. „Þannig þurfti ekki að greiða fyrir þær vörur sem t.d. döguðu uppi á lager framleiðenda. Hins vegar bar innflytjendum að greiða við innflutning vörugjald á fullunnum vörum og taka um leið á sig öll afföll sem verða á hinni gjaldskyldu vöru.“ SVÞ telja fyrirkomulag fela í sér verulega mismunum varðandi framkvæmd gjaldtökunnar sem væri illsamræmanleg þeirri meginreglu ákvæða EES-samningsins um að gjöld skulu falla jafnt á alla, óháð framleiðslulandi. Í kjölfar kvörtunar SVÞ leitaði ESA skýringa hjá íslenskum stjórnvöldum varðandi umrædda gjaldtöku og hugsanlegt misræmi varðandi hana. Á meðan rekstur málsins stóð yfir hjá ESA voru lög um vörugjald afnumin og umrædd gjaldtaka þannig felld úr gildi. Í ljósi þess taldi ESA ekki lengur vera til staðar hætta á mismunun og því má gera ráð fyrir að málinu verði lokið að svo stöddu af hálfu ESA samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá SVÞ. SVÞ telja hins vegar að umfjöllun ESA um málið feli í sér viðurkenningu á því að umrædd gjaldtaka hafi falið í sér mismunun. „Þessu til viðbótar er það einnig vafa undirorpið hvort og hvernig þessi framkvæmd samrýmist jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins sem og jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar,“ segja SVÞ.
Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Hvað er opið um páskana? Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira