Íhuga að hætta við komu skemmtiferðaskips vegna tollalaga Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 24. maí 2012 18:45
Franskt félag íhugar að hætta við fyrirhugaða siglingu skemmtiferðaskips við Íslandsstrendur í sumar vegna tollalaga. Félaginu er gert að greiða háar fjárhæðir í skatta og aðflutningsgjöld umfram önnur skemmtiferðaskip þar sem ætlunin er að taka nýja farþega um borð hér á landi. Búist er við metfjölda skemmtaferðaskipa til landsins í sumar. Þá er von á að skipin stoppi lengur hér við land en áður og fyrirhugað er að einu skipanna verði siglt við Íslandsstrendur í fjórar vikur. „Það er að koma hingað franskt skemmtiferðaskip sem komið hefur hingað nokkrum sinnum áður," segir Sigvaldi Hrafn Jósafatsson, starfsmaður hjá Gáru Skipamiðlun. „Þeir hafa ákveðið að fjölda ferðunum og útvíkka þær þannig að farþegar fljúga hingað í meira mæli en áður, þannig að það verða farþegaskipti á Íslandi." Skipt verður þrisvar um farþega á þessu tímabili. Þar sem farþegar koma bæði um borð og fara aftur frá borði á Íslandi þarf skipið samkvæmt tollalögum að greiða meira í skatta en erlend skemmtiferðaskip gera almennt. „Þegar skipið er búið að skipta einu sinni um farþega og ef það skiptir aftur um farþega þá verður allt skattskylt sem er um borð í skipinu, alveg frá smæsta rúsínupakka og upp í eldsneyti sem er um borð. Af þessu þarf að greiða aðflutningsgjöld sem eru alveg hrikalegar upphæðir." Sigvaldi segir þetta erfitt í framkvæmd. Þar sem um nýjung sé að ræða í ferðum franska skemmtiferðaskipsins þá hafi ekki reynt á þetta áður. Fyrir Alþingi liggi frumvarp þar sem tekið er á þessu og öll skemmtiferðaskip hafa skemmri viðdvöl en fjóra mánuði sett undir sama hatt. Óvíst er þó hvort náist að ljúka afgreiðslu þess fyrir sumarið. Hann segir eigendur skipsins íhuga að hætta við siglinguna. „Þeir eru mjög óhressir og eru enn þá að velta fyrir sér hvað þeir eiga að gera."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira