Innlent

Íhuga að hækka viðvörunarstig vegna flugs í rautt

Sveinn Arnarsson skrifar
Ekkert sést enn á yfirborði jökulsins að gos sé hafið
Ekkert sést enn á yfirborði jökulsins að gos sé hafið mynd/ómar ragnarsson
Veðurstofan skoðar nú þann möguleika hvort hækka eigi viðvörunarstig vegna flugs í rautt. Síðastliðna sólarhinga hefur viðvörunarstigið verið í næst hæsta stigi, sem er appelsínugult. 

Melissa Anne Pfeffe, sérfræðingur á sviði ösku- og efnadreifingar hjá Veðurstofunni segir í samtali við blaðamann Vísis að verði viðvörnunarstígið hækkað í rautt séu menn nokkuð vissir að gos muni hefjast innan nokkurra klukkutíma. Verði viðvörunarstigið hækkað þýðir það að flug verður bannað á stóru svæði umhverfis Bárðarbungu. 

Berggangurinn undir Dyngjujökli hefur verið að færa sig nokkuð til norðurs undanfarinn sólarhring og er endi ganganna undir Dyngjujökli, nokkra kílómetra frá jökulsporðinum. Vísir hefur áður greint frá því að Samhæfingarstöð almannavarna hefur fjölgað starfsfólki á vakt nú eftir hádegið, eftir að fór að bera á mikilli virkni undir jöklinum. Óróamælingar við Dyngjujökul, Grímsvötn og Bárðarbungu sýna að óróinn hefur færst í aukana frá því rétt eftir ellefu í morgun. 

Hér má lesa punkta af fundi Vísindamanna sem má finna á vef Veðurstofunnar:

  • Skjálftavirkni í kringum Bárðarbungu  hefur aukist töluvert nú rétt fyrir hádegi
  • TF-SIF hefur verið sett í viðbragðsstöðu sem er hluti af eðlilegu ferli við þessar aðstæður
  • 25 km gangur undir Dyngjujökli hefur lengst hratt til norðurs á síðustu klukkustundum
  • GPS landmælingar sýna heildargliðnun um rúmlega 20 cm frá því atburðir hófust
  • Engar marktækar breytingar mælast í vatnsföllum í nágrenninu
  • Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur en verið er að meta hvort ástæða sé að breyta honum

Tengdar fréttir

Berggangurinn 4 kílómetrar á hæð

Undir Dyngjujökli hefur myndast langur berggangur þar sem kvika þrengir sér inn. Eitt hundrað milljónir rúmmetra af kviku hafa aðeins metra breiða sprunguna og átökin hafa valdið þúsundum jarðskjálfta. Jarðskjálftar, allt að fjögur stig, mældust í öskju Bárðarbungu í gær.

Með hugann við hætturnar

Bárðarbunga, eitt öflugasta og hættulegasta eldfjall Íslands, hefur látið á sér kræla að undanförnu og átt sviðið í fréttum vikunnar. Gos í fjallinu eða nálægt því gæti framkallað gífurlegar hamfarir, sérstaklega ef gýs undir mörg hundruð metra þykkri jökulhettunni. Þá getur jökulhlaup frá fjallinu ógnað byggðum og mannvirkjum í mörg hundruð kílómetra fjarlægð.

„Tilfinningakokteill“ einkennir líðan íbúanna

Íbúar á áhrifasvæði hugsanlegs flóðs í Jökulsá á Fjöllum eru við öllu búnir. Bændur huga að því að smala fé sínu af hættusvæðinu. Skjálftavirknin undir Vatnajökli heldur sífellt áfram og stærsti skjálftinn í hrinunni hingað til mældist í gær.

Sýslumaðurinn á Húsavík heldur íbúafund í Öxarfirði

Í kvöld verður íbúafundur í Öxarfjarðarskóla í Lundi klukkan 20:00 vegna jarðskjálftahrinunnar í Bárðabungu.Samskonar fundur verður með viðbragðsaðilum og hagsmunaaðilum á Egilsstöðum klukkan 9 í fyrramálið og verður hann haldinn í húsi björgunarsveitarinnar á Egilsstöðum.

Sterkasti skjálftinn það sem af er var í nótt

Fjögur hundruð skjálftar við Bárðarbungu. Skjálfti uppá 4,7-4,8 stig. Skjálftavirkni við Bárðarbungu og Dyngjujökul er enn mikil. Þó dró nokkuð úr henni upp úr klukkan tvö í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×