Innlent

Íhaldssemi VG í sjávarútvegsmálum flækti málin

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar Vísir/Ernir
Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar hefur ritað pistil á heimasíðu flokksins þar sem hann fer yfir hvers vegna slitnaði úr stjórnarmyndunarviðræðum fimm flokka í gær.

Þar segir hann meðal annars að fulltrúi VG í málefnahópi um atvinnuvegamál hafi verið of íhaldssamur um gjaldtöku í sjávarútvegi og að hugmyndir um skattahækkanir hafi ekki fallið í kramið hjá Viðreisn.

„Um helgina voru ágætar samræður um verklag og ég taldi eftir það að ekki væri ómögulegt að saman myndi ganga. Þó kom fram að fulltrúi VG var mjög íhaldssamur um gjaldtöku í sjávarútvegi og lagðist gegn markaðsleið. Samt taldi ég að vel væri hugsanlegt að ná málamiðlunum sem væru ásættanlegar,“ skrifar Benedikt en Lilja Rafney Magnúsdóttir þingkona var fulltrúi VG í málefnahópnum um atvinnuvegamál.

„Eftir að hafa hitt fulltrúa okkar í hópunum fjórum á mánudaginn vorum við mjög efins um að saman gengi. Daginn eftir var farið sérstaklega í ríkisfjármálin og þá kom fram að staða ríkissjóðs var ekki eins góð og við héldum. Miklum peningum hafði verið eytt á síðustu viku þingsins í almannatryggingum og vegaáætlun.“

Hugmyndir um skattahækkanir komu á óvart

Benedikt segir að langt hafi verið í land svo hægt væri að fjármagna hugmyndir um stórfellda útgjaldaaukningu. Viðtal við Katrínu Jakobsdóttur formann VG í Fréttablaðinu í gærmorgun þar sem hún ræddi hugmyndir flokksins um hátekjuskatt hafi svo komið flokksmönnum á óvart.

„Valið í gær stóð á milli þess að fara í langar viðræður um stjórnarsáttmála sem ekki var líklegt að flokkarnir næðu saman um eða spyrja Katrínu hvort hún teldi samstarfið vænlegt miðað við þann mun sem var á milli afstöðu flokkanna. Það var niðurstaða hennar að ekki bæri að fara lengra með samtalið.“

Benedikt segir þó að samtalið hafi verið gagnlegt að mörgu leyti og að viðræðurnar hafi gefið vonir um að samstarfið á þingi verði betra en ella.

„Auðvitað eru alltaf vonbrigði ef ekki næst saman, en málefni hljóta að ráða.


Tengdar fréttir

Meirihlutastjórn ekki mynduð án svika

Nokkuð ljóst er orðið að ekki verði mynduð meirihlutastjórn án þess að einhver flokkur gangi þvert á orð sín um að útiloka samstarf við tiltekna flokka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×