Viðskipti innlent

Iðnnám ekki nám í skilningi laga

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI Samtök Iðnaðarins
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að breyta þurfi viðhorfum gagnvart iðnnámi, sem ekki er skilgreint sem nám í lagalegum skilningi. Þetta sagði hann í viðtali í útvarpsþættinum Í bítinu á Bylgjunni fyrr í morgun.

Umræðan á sér stað í kjölfar úrskurðar Útlendingastofnunar um að synja matreiðslunemanum Chuong Le Bui námsmannadvalarleyfi hér á landi. Henni er gert að yfirgefa landið á næstu fimmtán dögum, eins og Vísir greindi frá í gær.

Sigurður segir í viðtalinu að viðhorfsbreytingar þarfnist. „Slíkar breytingar taka tíma og þær þurfa að eiga sér stað víða í samfélaginu en ráðamenn ættu auðvitað að fara fremstir í flokki og hampa iðnmenntun. Ég vona það svo sannarlega að á þeim maraþonfundum sem nú eiga sér stað þessa dagana í ráðherrabústaðnum að þá sé þetta meðal þess sem þar er rætt.“

Í skilningi nýrra útlendingalaga stendur iðnnám ekki jafnfætis háskólanámi og telst í raun ekki vera nám í skilningi laganna. Chuong Le Bui hefði því líklegast fengið námsmannadvalarleyfi hefði hún verið skráð í háskólanám. Lagabreytingin tók gildi um síðastliðin áramót.

Sigurður segir að við eigum að taka því fagnandi þegar ungmenni frá öðrum löndum vilja læra iðnir hér. „Staðan hjá okkur er auðvitað sú að það er mikill skortur á iðnmenntuðu fólki í landinu og við eigum auðvitað að taka því fagnandi ef ungmenni frá öðrum löndum vilja læra iðnir hér hjá okkur. Það er mikil vinna sem bíður iðnnema að námi loknu og það er mikil eftirspurn eftir fólki með iðnmenntun. Iðnmenntaðir skapa svo sannarlega mikil verðmæti hér í samfélaginu.“



Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Sigurð í heild sinni í útvarpsþættinum Í bítið á Bylgjunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×