Iðjuleysi myndi gera út af við mig

Vísir Handbolti 20. febrúar 2012 07:00
Björgvin Páll lætur fara vel um sig í íbúð hans og eiginkonunnar Karenar Einarsdóttur í Magdeburg, þar sem Fréttablaðið ræddi við hann á dögunum.fréttablaðiði/E. Stefán
Björgvin Páll lætur fara vel um sig í íbúð hans og eiginkonunnar Karenar Einarsdóttur í Magdeburg, þar sem Fréttablaðið ræddi við hann á dögunum.fréttablaðiði/E. Stefán
Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Berlín skrifar:
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, stendur í ströngu þessa dagana. Hann leikur með Magdeburg í Þýskalandi þar sem hann er í harðri samkeppni um mínútur inni á vellinum og í janúar fékk hann í fyrsta sinn á ferlinum að kynnast alvöru mótlæti með íslenska landsliðinu.

Utan handboltans rekur hann íslenskt fyrirtæki heima úr stofunni sinni heima í Magdeburg en þar settist Fréttablaðið niður með honum á dögunum.


Ætla að verða númer eitt
Hollendingurinn Gert Eijlers er hinn markvörðurinn í liði Magdeburg og virðist fá oftar tækifærið í byrjunarliðinu þó svo að Björgvin fái vitanlega sína leiki. Hann minnti til að mynda vel á sig í leik Magdeburg og Nexe Nasice í EHF-bikarkeppninni á laugardaginn. Þá hélt hann sínum mönnum inni í leiknum með frábærri frammistöðu og með því að verja lokaskot Króatanna í leiknum sá hann fyrir því að liðið gat tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.

„Þetta er nýtt fyrir mér en þetta er eitthvað sem ég átti von á," segir Björgvin um samkeppnina við Eijlers en viðtalið var tekið á fimmtudaginn síðastliðinn, fyrir leikinn í Króatíu.

„Eftir fyrri helming tímabilsins átti ég gott spjall við þjálfarann sem hafði hugsað sér að ég myndi nota fyrstu mánuðina til að kynnast því að spila í þýsku úrvalsdeildinni. Þess fyrir utan hefur Gert spilað frábærlega í vetur í öllum þeim leikjum sem hann hefur spilað. Ég hefði auðvitað viljað spila meira en ég hef gert en ég er sáttur við mína frammistöðu í þeim leikjum sem ég hef spilað."

Hann segist reiðubúinn að bíða. „Ég ætla mér að verða númer eitt í framtíðinni — sama hvenær það gerist. En flestöll lið í deildinni eru með tvo góða markverði og þetta er því eðlilegt."


Ný reynsla í Serbíu
Björgvin segir að færri mínútur á vellinum hafi áhrif á stöðugleika. Það hafi ef til vill endurspeglast á EM í Serbíu, þar sem hann átti misjafna leiki í upphafi mótsins.

„Auðvitað hefði ég viljað spila betur á EM. Varnarleikurinn var líka misjafn en ég hefði þrátt fyrir það viljað verja fleiri bolta. Ég var ósáttur við mig þá."

Björgvin hefur átt glæsilegan landsliðsferil og mótlætið í Serbíu var því ný reynsla fyrir hann. „Ég náði árangri mjög snemma og mjög fljótt. Uppgangurinn var hraður hjá mér og ég held að hluti af því var að ég fékk mikið að spila. Ég fann fyrir miklu trausti og það var mikilvægt," segir Björgvin.

Hann fékk líka að kynnast því í Serbíu að vera gagnrýndur af félögum hans í landsliðinu, til að mynda Aroni Pálmarssyni sem er góðvinur Björgvins.


Gagnrýni merki um gæði
„Ég las þetta í fjölmiðlum eins og aðrir. Svo fór ég upp á herbergi til Arons og við horfðum saman á sjónvarpið," segir hann og brosir.

„Gagnrýni getur líka verið jákvæð. Þá þýðir að það eru gerðar kröfur til mín og er merki um að það sé mikil ábyrgð á mér. Þeir væru ekki að gagnrýna mig nema að þeir viti hvað ég get."

Eftir leikinn tók við andvökunótt og hann skrifaði frægan pistil þar sem hann bað íslensku þjóðina afsökunar.

„Ég er sjálfur minn mesti gagnrýnandi. Þetta var erfitt enda hafði mér gengið vel á öllum mínum stórmótum með landsliðinu. Þetta var í fyrsta sinn á ferlinum sem ég missti sjálfstraust á vellinum og það tók á. En ég fann líka fyrir miklum stuðningi úr öllum mögulegum áttum sem var ómetanlegt. Þannig unnum við úr þessu og þetta kom svo á endanum," segir hann en Björgvin sýndi aftur sitt rétta andlit með góðri frammistöðu í leikjum Íslands í milliriðlakeppninni.


Draumar geta ræst í Magdeburg
Björgvin Páll er stórhuga enda áður lýst því yfir að hann ætli sér að verða einn af bestu markvörðum heims. Hann telur að hann geti bætt sig hjá Magdeburg og að bjart sé fram undan hjá félaginu.

„Magdeburg er handboltabær. Íbúar þekkja frekar handboltamenn með nafni en fótboltamenn. Liðið er í hópi efstu liða deildarinnar og í Evrópukeppni. Fjárhagur félagsins er góður á meðan mörg önnur lið eru í basli. Félagið hefur unnið vel úr sínum málum."

Magdeburg hefur líka góða reynslu af Íslendingum enda þjálfaði Alfreð Gíslason liðið með góðum árangri. Ólafur Stefánsson, Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason spiluðu svo allir með liðinu á sínum tíma.

„Ég hagnaðist á því og það var auðveldara fyrir vikið að koma inn í félagið. Mér líður vel hér og hef þegar bætt mig sem markvörður. Ég er með stóra drauma og sé fyrir mér að ég geti látið þá rætast með Magdeburg. Hlutirnir breytast stundum fljótt í íþróttum en ég get vel ímyndað mér að vera hér í mörg ár til viðbótar."


Silfrið gerir mér gott
Sem fyrr segir er Björgvin einnig þekktur fyrir að hafa haslað sér völl utan handboltans með fyrirtæki sínu, S08 ehf. Fyrirtækið er fyrst og fremst þekkt fyrir Silver-hárgelið auk annarra vara en nýjasta verkefnið er fjarþjálfun sem skartar mörgum af skærustu íþróttastjörnum landsins. Hann segir að verkefni sem þessi hafi ekki bitnað á handboltanum og að hann sé því fyllilega einbeittur að íþróttinni.

„Ég hef heyrt gagnrýni á þessum nótum áður en tel að það sé einfaldlega ekki rétt. Ef ég hefði ekkert að gera á milli æfinga og leikja myndi það gera út af við mig. Sem dæmi má nefna að fyrstu tvo dagana í Serbíu var ég veikur og því í einangrun á hótelherberginu. Mér hefur sjaldan liðið jafn illa á ævinni," segir hann.

„Ég vil því nýta tímann sem ég hef fyrir utan handboltann. Ég hef gaman að því að sinna mínu fyrirtæki og ég vil hafa mikið fyrir stafni. Ég hef líka verið að sækja mér menntun og ætla að hefja fjarnám frá háskólanum í Bifröst í haust. Ég hef alltaf verið svona og ekkert meira að gera hjá mér núna en áður. Ég er nokkuð morgunhress maður og á meðan ég hef tíma og getu til að sinna þessum málum með þá held ég áfram að gera það."


Tók á að missa Hreiðar
„Ég get að hluta til tekið það á mig að Hreiðari var skipt út,“ segir landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson um ákvörðun Guðmundar Guðmundssonar landsliðsþjálfara að kalla Aron Rafn Eðvarðsson, markvörð Hauka, inn í landsliðið á kostnað Hreiðars Levýs Guðmundssonar fyrir milliriðlakeppnina á EM í Serbíu.

„Ef ég hefði staðið mína plikt og varið mína bolta hefði Hreiðar verið áfram inni. Það tók mikið á að sjá eftir honum þó svo að Aron Rafn hafi staðið sig gríðarlega vel. Það var samt erfitt að missa góðan vin úr hópnum,“ bætir Björgvin við.

„Að sama skapi er gott fyrir mig og Hreiðar að fá samkeppni í landsliðinu enda hefur Aron Rafn sýnt að hann er framtíðarmarkvörður - til dæmis með frammistöðu sinni í bikarleik Hauka og FH á dögunum. Það verður skemmtilegt að sjá í framtíðinni hvernig okkur þremur tekst að vinna úr því að spila saman í landsliðinu.“

Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 25. maí. 2012 07:00

Ólafur getur unnið í þriðja landinu

Ólafur Stefánsson á möguleika á því að vinna Evrópukeppni meistaraliða í fimmta sinn á fer...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 17:45

Ágúst og Rakel Dögg stofna saman Handknattleiksakademíu

Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna og Rakel Dögg Bragadóttir fyrirliði landsliðs kv...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 10:16

Kvennalandsliðið mætir U-16 liði karla

A-landslið kvenna í handbolta mun í kvöld leika æfingaleik gegn íslenska piltalandsliðinu ...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 08:00

Snorri Steinn: Mætum óhræddir til leiks

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta ráðast um helgina. Þá fara fram undanúrslit og...  

Meira
Handbolti 24. maí. 2012 07:30

Óli er maður stóru leikjanna

Ólafur Stefánsson mun mæta sínum gömlu félögum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á la...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 22:39

Heimir Óli búinn að semja við GUIF

Haukamaðurinn Heimir Óli Heimisson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við sænska...  

Meira
Handbolti 23. maí. 2012 19:40

Fínn leikur Hannesar dugði ekki til sigurs

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf varð að sætta sig við tap, 35-37, á heimavelli gegn Gumm...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 23:30

Guðmundur grillar ofan í stuðningsmenn Löwen

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, og lærisveinar hans verða með grillspa...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 20:30

Þrjú ný félög í N1-deild kvenna

Alls verða tólf lið í N1-deild kvenna næsta vetur þar sem þrjú ný félög hafa boðað þáttöku...  

Meira
Handbolti 22. maí. 2012 13:00

Anton til Danmerkur

Anton Rúnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið Sö...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 20:00

Noregur, Króatía og Pólland berjast um EM 2016

Þrjú lönd eru enn í baráttunni um að halda EM í handbolta árið 2016. Það verður ákveðið í ...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 13:30

Lövgren lofar Ólaf og Alexander

Úrslitin í Meistaradeild Evrópu ráðast í Köln í Þýskalandi um helgina og hefur Svíinn Stef...  

Meira
Handbolti 21. maí. 2012 07:00

Þórir: Togaði í að fá að spila í Meistaradeildinni og að vinna titla

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu um helgina pólskir meistarar í handbolt...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 21:36

Sunneva Einarsdóttir ver mark Stjörnunnar á næsta tímabili

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gert samning við markvörðinn Sunnevu Einarsdóttir en...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 20:30

Stefnir allt í fullkomið tímabil hjá Kiel | 32 sigrar í röð

Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir það að þýska handknattleiksliðið Kiel skrái sig ...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 19:21

Jón Heiðar gengur til liðs við ÍR

Handknattleiksmaðurinn Jón Heiðar Gunnarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍR og mun...  

Meira
Handbolti 20. maí. 2012 07:00

Þórey og Rut rétt misstu af bronsinu

Íslensku landsliðskonunar Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir urðu í fjórða sæti me...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 19:42

Fimm mörk Kára ekki nóg á móti Hamburg - mikilvægt hjá Bergischer

Kári Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir HSG Wetzlar þegar liðið tapaði 26-28 á heimavelli f...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 17:02

AG í úrslitaleikinn um titilinn - Ólafur mjög góður í sigri á Kolding

AG Kaupmannahöfn tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handbolt...  

Meira
Handbolti 19. maí. 2012 14:28

Þórir pólskur meistari í handbolta

Þórir Ólafsson og félagar í Vive Targi Kielce urðu nú áðan pólskir meistarar í handbolta e...  

Meira
Handbolti 18. maí. 2012 19:30

Mikilvægur sigur hjá Füchse Berlin

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin færðust í kvöld skrefi nær því að tryggja ...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 22:45

Þjálfari Rúnars Kárasonar rekinn

Rúnar Kárason fær senn nýjan þjálfara hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Bergischer HC þar se...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 21:15

Alfreð: Slekk á símanum í 3-4 vikur og sinni garðinum

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í Þýskalandi, segir að það sé mikilvægt að hvílast vel þega...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 16:32

Benedikt Reynir til liðs við Aftureldingu

Mosfellingar hafa fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil í N1-deild karla en Benedikt Reynir...  

Meira
Handbolti 17. maí. 2012 12:45

Sögusagnir í Þýskalandi: Guðmundur að hætta með Löwen

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Rhein-Neckar Löwen, gæti veri...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 20:25

Hrun hjá Löwen í seinni hálfleik

Rhein-Neckar Löwen steinlá fyrir Flensburg á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 3...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:46

Kiel enn ósigrað í Þýskalandi

Kiel hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með sex mar...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 19:31

Rut og Þórey nálgast bronsið

Þórey Rut Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir skoruðu sitt markið hvor þegar að lið þeirra, Te...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 17:44

Vignir í fjórtán daga bann

Vignir Svavarsson hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann vegna rauða spjaldsins sem hann ...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 11:57

Sunna kölluð inn í A-landsliðið

Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handbolta hefur þurft að gera eina breytin...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 08:00

Pistillinn: Hver er þróun kvennahandboltans?

Eftir að hafa fylgst með undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik hugsar maður hvert k...  

Meira
Handbolti 16. maí. 2012 06:00

Spenntur fyrir landsliðinu

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að mest spennandi þjálfarastarf á Íslandi sé land...  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 17:16

Gunnar Berg tekur við Stjörnunni

Gunnar Berg Viktorsson mun að óbreyttu taka við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handbolta....  

Meira
Handbolti 15. maí. 2012 12:30

HK missir Elínu Önnu yfir í FH

Elín Anna Baldursdóttir, markahæsti leikmaður HK í úrslitkeppni N1 deildar kvenna og einn ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 22:45

Kjelling tekur þátt í úrslitakeppninni í Katar

Norski landsliðsmaðurinn Kristian Kjelling er staddur þessa dagana í Katar þar sem hann le...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 18:43

Sigurbergur Sveinsson í Hauka

Sigurbergur Sveinsson hefur gert tveggja ára samning við deildarmeistara Hauka. Hann lék s...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 17:15

Árni Þór semur við Friesenheim

Örvhenta skyttan Árni Þór Sigtryggsson mun enn á ný söðla um í Þýskalandi í sumar en hann ...  

Meira
Handbolti 14. maí. 2012 13:00

Örn Ingi hættur í FH og farinn í Aftureldingu

Örn Ingi Bjarkason, leikmaður í úrvalsliði N1 deildar karla í handbolta, hefur gert tveggj...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 19:00

Ágúst Þór búinn að velja landsliðshópinn

Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari A-liðs kvenna í handknattleik, hefur valið 20 leik...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 17:43

Refirnir frá Berlín hökkuðu Sverre og félaga í sig

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin styrktu stöðu sína í þriðja sæti þýsku úrv...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:59

Flottur útisigur hjá Hannover

Íslendingaliðið Hannover-Burgdorf vann góðan útisigur á Hildesheim í dag og reif sig um le...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 16:52

Sigurjón semur við uppeldisfélagið

ÍR-ingar halda áfram að safna liði fyrir komandi átök í N1-deild karla. Þeir hafa nú samið...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 12:40

Kiel í litlum vandræðum með Hamburg | Stefnir í fullkomið tímabil

Það stefnir svo sannarlega í fullkomið tímabil hjá lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Kiel e...  

Meira
Handbolti 13. maí. 2012 00:05

Ólafur Bjarki og Stella valin best í handboltanum

Það var mikið um dýrðir í kvöld þegar lokahóf HSÍ fór fram. Þau Ólafur Bjarki Ragnarsson ú...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 18:36

Flott endurkoma hjá Kára og félögum

Kári Kristján Kristjánsson og félagar í Wetzlar nældu á stig á útivelli er þeir sóttu TuS ...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:33

AG gerði jafntefli í fyrri undanúrslitaleiknum

Dönsku meistararnir í AG gerðu jafntefli, 26-26, í fyrri leik sínum við Kolding í undanúrs...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 17:21

Gleði á Hlíðarenda - myndaveisla

Valskonur urðu Íslandsmeistarar í handknattleik í dag er þær unnu afar sannfærandi sigur á...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:53

Hrafnhildur: Verð bara betri með árunum

"Ég verð aldrei þreytt á því að lyfta þessum bikar, enda er ég með frekar góða upphandlegg...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:50

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 24-21 | Valur Íslandsmeistari

Valur varð í dag Íslandsmeistari í handknattleik kvenna eftir frábæran sigur á Fram, 24-21...  

Meira
Handbolti 12. maí. 2012 16:29

Rúnar og félagar voru flengdir

Rúnar Kárason skoraði eitt mark þegar lið hans, Bergischer, var flengt af Flensburg með sa...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Handbolti / Iðjuleysi myndi gera út af við mig