Viðskipti innlent

Icelandic Times gefið út á kínversku

Randver Kári Randversson skrifar
Ferðaritið Icelandic Times verður gefið út á kínversku frá 1. október
Ferðaritið Icelandic Times verður gefið út á kínversku frá 1. október Vísir/Stefán
Ferðaritið Icelandic Times hefur á síðustu árum vaxið umtalsvert og er nú gefið út á þremur tungumálum; ensku, frönsku og þýsku. Nú í haust stendur til að stækka útgáfuna enn frekar og gefa út blað sérstaklega ætlað kínverskum ferðamönnum, sem verður á kínversku. Þetta kemur fram á vefnum landogsaga.is.

Edda Snorradóttir, verkefnastjóri Icelandic Times, segir að að kínverski markaðurinn sé einfaldlega afar spennandi, ekki síst sökum stærðar sinnar og þeirra möguleika sem í honum felist. „Það er fyrirséð að ferðalög Kínverja erlendis munu halda áfram að aukast og við viljum að sjálfsögðu að Ísland tryggi sér sess í hugum kínverskra ferðalanga sem spennandi valmöguleiki. Í Kína er unnið ötullega að íslenskri landkynningu og við þurfum að leggja okkur fram við að bjóða þá ferðamenn velkomna sem sækja okkur heim. Hluti af því felst í að veita þeim upplýsingar á þeirra eigin tungumáli um staðhætti og þá þjónustu sem hér er í boði og gera þeim þannig hægara um vik að nálgast ýmis konar afþreyingu og upplifun svo heimsóknin verði þeim sem ánægjulegust.“ 

Blaðið verður skrifað á mandarin kínversku sem er opinbert mál í Kína og útbreiddasta mállýska landsins. Efni blaðsins verður alfarið unnið hér landi en svo þýtt og staðfært af sérfræðingum og kínverskumælandi starfsfólki Icelandic Times.

Edda leggur áherslu á að framtak af þessu tagi reynist gagnlegt fyrir þau fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar sem vilji ná til þessa hóps ferðamanna og hafi jafnvel þegar lagt í það fjármagn og vinnu. Blaðið verður að forminu til svipað þeim sem Icelandic Times er þegar að gefa út þótt hafa verði hugfast að talsverður menningarmunur sé á milli Íslendinga og Kínverja. Því þurfi að huga að ýmsu varðandi framsetningu þannig tryggt sé að skilaboðin komist óbjöguð á leiðarenda. Grunnhugmyndin er þó vitaskuld alltaf sú sama, þ.e. að  aðaðstoða þá sem hingað koma og leiða þá inn í menningu okkar, sögu og náttúru.

Fyrsta kínverska útgáfa Icelandic Times mun líta dagsins ljós þann 1. október næstkomandi. Dagsetningin er táknræn, enda þjóðhátíðardagur Kínverja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×