Viðskipti innlent

Icelandair rekið með 2,1 milljarðs tapi á fyrstu þremur mánuðum ársins

ingvar haraldsson skrifar
Björgólfur Jóhannsson er sáttur við jákvæðan rekstarhagnað í upphafi árs, í fyrsta skipti frá árinu 2010.
Björgólfur Jóhannsson er sáttur við jákvæðan rekstarhagnað í upphafi árs, í fyrsta skipti frá árinu 2010. Vísir/Stefán
Icelandair Group tapaði 2,1 milljarði króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Tapið er meira en á sama tíma fyrir ári þegar tapið nam 1,8 milljörðum króna.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir ástæðu tapsins vera árstíðarsveiflu í rekstrinum. „Fyrsti fjórðungur ársins er jafnan þungur í rekstri þar sem mikið af kostnaði er gjaldfærður á fjórðungnum sem tengist auknu umfangi á  háönn,“ segir hann.

Engu síður sé það jákvætt að rekstarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) á ársfjórðungnum sé jákvæð í fyrsta sinn síðan árið 2010. „Farþegum í millilandaflugi fjölgar mikið milli ára og sætanýting heldur áfram að batna. Þá var herbergjanýting á hótelum félagsins góð á tímabilinu. Rekstur annarrar starfsemi samstæðunnar gekk einnig vel á fjórðungnum. Launakostnaður hækkar um 25% milli ára sem skýrist af auknu umfangi, samningsbundnum launahækkunum og styrkingu krónunnar á móti bandaríkjadal,“ segir Björgólfur.

Horfur í millilandastarfsemi Icelandair Group séu áfram góðar. „Bókunarstaða fyrir sumarið er í samræmi við væntingar og mun Icelandair taka í notkun tvær Boeing 767 breiðþotur á næstu vikum. Í byrjun júní mun Canopy Reykjavík, nýtt 112 herbergja hótel, opna í miðborg Reykjavíkur í samstarfi við Hilton-keðjuna. Þá hefur Flugfélag Íslands tekið í notkun tvær af þremur Bombardier vélum sínum sem munu leysa af hólmi Fokker vélar félagsins. Fjölgun ferðamanna til Íslands er spennandi áskorun fyrir starfsfólk og stjórnendur félagsins og ljóst að það mun reyna á innviði ferðaþjónustunnar á komandi sumri. Ég er þess fullviss að reynsla og þekking starfsfólks Icelandair Group munu þar reynast félaginu dýrmæt sem fyrr,“ segir Björgólfur.

„Eldsneytisverð hefur hækkað nokkuð frá því það var lægst í janúar og gerum við ráð fyrir um 14% hærra verði, að meðaltali það sem eftir lifir árs, en við gerðum þegar við gáfum út EBITDA spá í byrjun febrúar. Kostnaðarhækkanir, sérstaklega hvað varðar laun, og lækkun meðalfargjalda umfram áætlanir vega jafnframt þungt í því að EBITDA spá félagsins lækkar nú í 235-245 milljónir USD úr 245-250 milljónum USD.“  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×