Viðskipti innlent

Icelandair fjölgar breiðþotum úr tveimur í fjórar Boeing 767

Kristján Már Unnarsson skrifar
Icelandair hefur keypt tvær Boeing 767-þotur til viðbótar við þær tvær, sem koma í áætlun í sumar, og verður með fjórar breiðþotur í rekstri á næsta ári. Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um beiðþotuvæðingu íslenska flugflotans og rætt við Jens Bjarnason, framkvæmdastjóra framleiðslusviðs Icelandair. 

Fram til þessa hafa Íslendingar nær eingöngu flogið í mjóum þotum til útlanda en nú er það að breytast. Icelandair-menn fögnuðu í síðasta mánuði komu tveggja breiðþota af gerðinni Boeing 767. Tímamót urðu einnig hjá WOW-flugfélaginu í vikunni þegar það fékk sína fyrstu breiðþotu, af gerðinni Airbus A330, en WOW er að taka þrjár slíkar vélar í notkun.

Icelandair hafði tvívegis áður reynt breiðþoturekstur í áætlunarflugi um Ísland, en aðeins um skamma hríð í hvort sinn, fyrst með DC-10 þotu fyrir 37 árum og síðan með Boeing 767 fyrir áratug. 

Icelandair hefur nú tilkynnt um að félagið hafi keypt tvær breiðþotur til viðbótar. Þær eru einnig af gerðinni Boeing 767 en keyptar notaðar. Áformað er að þær komi inn í rekstur félagsins vorið 2017 en fara áður í gegnum gagngerar endurbætur og breytingar, að sögn Jens Bjarnasonar. 

„Grunnástæðan er auðvitað þessi mikla aukning og vöxtur fyrirtækisins og nú er þannig komið að í sumum tilvikum erum við að fljúga tveimur vélum með nánast sama brottfarartíma til ákveðinna borga. Þá er eðlilegt að stækka vélarnar,“ segir Jens.

Icelandair verður með fjórar Boeing 767-breiðþotur í áætlunarflugi á næsta ári.mynd/birgir örn sigurjónsson
Hann segir mjög hagstætt fyrir Icelandair að reka Boeing 767 við hlið 757-vélanna. Flugvélarnar séu nánast eins og því hægt að nota sömu flugmenn með sömu þjálfun á báðar vélarnar. Því sé hægt að bæta Boeing 767 inn án þess að það kalli á mikinn viðbótarkostnað við þjálfun áhafna. 

En það er fleira sem knýr á um stærri vélar. Flugvellir sumra stórborga eru sprungnir.

„Eins og London Heathrow og New York. Þá eru þessi flugvellir það umsetnir að jafnvel þó að við vildum fjölga ferðum þá er ekki hlaupið að því.“ 

Og þetta á líka við um Keflavík.

„Það eru mikil þrengsli í Leifsstöð. Umferðin er orðin það mikil og farþegafjöldinn að stæðin við flugstöðina eru takmörkuð auðlind. Maður getur þá flutt fleiri farþega með stærri vél heldur en minni,“ segir Jens Bjarnason. 

Stöð 2 fjallaði um fyrsta áætlunarflug Icelandair í vor á Boeing 767 í frétt sem sjá má hér.


Tengdar fréttir

Þessi verður stærsta áætlunarþota Íslands

Stærstu þotur sem sést hafa í áætlunarflugi til og frá Íslandi verða á leiðum til Kaliforníu en WOW air hefur ákveðið að hefja flug þangað næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×