Innlent

Icelandair dæmt til að greiða dánarbúi 70 milljónir

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Icelandair bar því  við að flugstjóranum hefði verið sagt upp vegna kynferðislegrar áreitni gagnvart yfirflugfreyju flugsins.
Icelandair bar því við að flugstjóranum hefði verið sagt upp vegna kynferðislegrar áreitni gagnvart yfirflugfreyju flugsins. VÍSIR/VILHELM
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Icelandair þurfi að greiða dánarbúi flugstjóra tæplega sjötíu milljónir króna í skaðabætur. Skaðabæturnar stöfuðu af ólögmætri uppsögn frá árinu 2010.

Dómur héraðsdóms féll í júní síðastliðnum en skaðabótaskylda Icelandair vegna uppsagnarinnar var viðurkennd með dómi Hæstaréttar árið 2013.

Flugmanninum var sagt upp eftir að hafa verið á heimleið, sem almennur farþegi, eftir að hann hafði lokið verkefni á vegum félagsins. Þar hafði honum verið gert að sök að hafa verið ölvaður, með ógnandi hegðun og endurtekna kynferðislega áreitni gagnvart flugfreyjum á heimleið frá Kastrup.

Var honum gert að fara inn á Vog til að kanna hvort hann væri með áfengissýki. Þar kom í ljós að svo var ekki en að hann væri með efnaskiptasjúkdóm og sykursýki sem gætu valdið því að hann finndi fyrir meiri ölvunaráhrifum. Sannað þótti að hann hefði neytt tveggja bjóra fyrir flug og rauðvínsflösku auk nokkurra líkjöra á meðan flugi stóð. Ekki þótti hann því hafa neytt áfengis í óhófi.

Icelandair bar því einnig að flugstjóranum hefði verið sagt upp vegna kynferðislegrar áreitni gagnvart yfirflugfreyju flugsins.

Flugmaðurinn lést þann 7. mars síðastliðinn og tók dánarbúið við aðild að dómsmálinu.

Engar áminningar voru veittar stefnda áður en honum var sagt upp og því var bótaskylda félagsins staðfest. Dánarbú flugstjórans fór fram á jafngildi fullra launa í veikindaforföllum hans og jafngildi óskertrar tryggingafjárhæðar samkvæmt skírteinistryggingu flugmanna. Ekki var fallist á skýringar Icelandair og flugstjóranum því dæmd full trygging

Þarf Icelandair því að greiða dánarbúinu 68,8 miljónir króna auk þess sem að félagið greiði 1,5 milljónir í málskostnað fyrir Hæstarétti.

Dóm Hæstaréttar má nálgast hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×