Fótbolti

Iceland bætir Englendingum upp tapið með fríum bjór

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Iceland stendur undir nafni og styður Ísland á EM en svo virðist sem stjórnendur fyrirtækisins hafi fengið smá móral eftir sigur Íslendinga á Englendingum í gær.
Iceland stendur undir nafni og styður Ísland á EM en svo virðist sem stjórnendur fyrirtækisins hafi fengið smá móral eftir sigur Íslendinga á Englendingum í gær. vísir
Breska verslunarkeðjan Iceland ætlar að bæta Englendingum upp tapið fyrir Íslandi á EM 2016 með því að bjóða upp á frían bjór í dag.

Iceland stendur undir nafni og styður Ísland á EM en svo virðist sem stjórnendur fyrirtækisins hafi fengið smá móral eftir sigur Íslendinga á Englendingum í gær.

Þess vegna verður Englendingum boðið upp á frían bjór í Iceland í dag. Um er að ræða 500 ml flöskur af Spitfire bjór en hann verður í boði í 700 Iceland-verslunum víðs vegar um England.

Ísland vann leikinn í Nice í gær með tveimur mörkum gegn einu og sendi enska liðið í sumarfrí. Íslendingar mæta Frökkum á Stade de France í 8-liða úrslitum á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×