Lífið

Icebody: "Maginn sléttari og þolið betra"

Ellý Ármanns skrifar
Hulda Lind.
Hulda Lind. Ljósmyndari: 1102
Hulda Lind Kristinsdóttir, betur þekkt sem Icebody, hefur ávallt hugað vel að heilsunni en hún útskrifaðist sem einkaþjálfari árið 2012 úr einkaþjálfaraskóla World Class.  Nú er hún að markaðssetja heilsusúkkulaði og heldur aðhaldsnámskeið samhliða því.

Hvernig kom það til að þú byrjaðir að selja súkkulaði?  „Fljótlega eftir að ég byrjaði á vörunum fór ég að finna mikið minni löngun í sætindi, meltingin mín varð betri, maginn sléttari og þolið betra og jafnara yfir daginn. Ég fékk stundum smá kviðstingi sem eru algjörlega horfnir. Ég kynnti mér þetta fyrirtæki sem framleiðir hágæða dökka súkkulaðið sem er frá 70 %. Mér leist strax vel á og byrjaði að markaðssetja það hérlendis," svarar Hulda.



Hulda og læknirinn Dr. Derrick DeSilva sem er maðurinn á bak við heilsuvörurnar.mynd/hulda
Ljósmyndari: 1102
Hvað er þetta og fyrir hvern? „Þetta eru heilsuvörur í súkkulaðiformi settar saman af virtum læknum. Þetta er fyrir alla. Hvert súkkulaði fyrir sig hefur sinn tilgang eins og til dæmis Relaxx sem virkar vel við stressi og þá sem eiga erfitt með svefn. Omega 3 súkkulaðið þekkja allir en það er gott fyrir heila og hjarta og Camu, sem er ofurávöxtur, hefur áhrif á allt að 300 mismunandi hluti í líkamanum - til dæmis bólgur, verki, sjón og bjúg," útskýrir Hulda

„Ég mæli með að fólk „gúggli" um Camu ofurávöxtinn því það er svo mikið sem hann er að gera fyrir okkur. Ég á hann einnig til í töfluformi fyrir þá sem vilja eða þurfa extra mikla virkni en í hverri töflu er um þrír Camu ávextir."



Ljósmyndari: 1102
„Súkkulaðið sem ég er mest spennt fyrir er L‘amour ástarsúkkulaðið sem var að koma á markaðinn. Ég hef heyrt frá fólki að þetta sé að virka vel fyrir bæði kynin. Svo er ég auðvitað með fleiri súkkulaðitegundir sem hver og ein hefur sinn tilgang," útskýrir hún.

Ljósmyndari: 1102
Hvað gerir fólk til að nálgast súkkulaðið? „Það getur haft samband við mig með því að senda mér tölvupóst á betriheilsa360@gmail.com eða á Facebooksíðunni sem ég held úti á slóðinni Betri Heilsa/Live Smart."

Ljósmyndari: 1102
„Það má kannski koma því að líka að ég verð með aðhaldsnámskeið í september fyrir þá sem vilja taka sig á. Innifalið á námskeiðinu eru vörur, eftirfylgni og stuðningur. Fólk getur skráð sig með því að senda mér tölvupóst," segir hún að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×