Fótbolti

Icardi bjargaði Inter gegn Pescara

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mauro Icardi var hetja Inter-manna í kvöld.
Mauro Icardi var hetja Inter-manna í kvöld. Vísir/Getty
Mauro Icardi bjargaði Inter á útivelli gegn Pescara í lokaleik dagsins í ítalsku deildinni í dag en þetta var fyrsti sigur Inter á tímabilinu í þriðju umferð.

Jean-Christophe Bahebeck kom Pescara yfir á 63. mínútu fjórum mínútum eftir að hafa komið inn sem varamaður en Mauro Icardi jafnaði metin á 77. mínútu eftir sendingu frá landa sínum, Ever Banega.

Icardi var ekki hættur því hann skoraði sigurmarkið á 91. mínútu og tryggði Inter fyrsta sigur vetrarins þegar boltinn féll fyrir fætur hans í vítateig Pescara.

Með sigrinum lyfti Inter sér upp í ellefta sæti en liðið er þegar fimm stigum á eftir Juventus á toppi deildarinnar á fyrsta tímabili Ronald De Boer með liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×