Íslenski boltinn

ÍBV náði í bronsið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnór Gauti í leik með Blikum áður en hann gekk til liðs við ÍBV.
Arnór Gauti í leik með Blikum áður en hann gekk til liðs við ÍBV. mynd/blikar.is
Eyjamenn höfnuðu í þriðja sæti Fótbolta.net mótsins eftir fínan sigur á ÍA, 2-0, í Akraneshöllinni í dag.

Markalaust var eftir fyrri hálfleik en Spánverjinn Alvaro Montejo Calleja kom ÍBV yfir í upphafi síðari hálfleiksins.

Það var síðan Arnór Gauti Ragnarsson sem tryggði Eyjamönnum sigurinn á lokamínútu leiksins.

Báðir þessir leikmenn komu til ÍBV í vetur og náðu því nýliðarnir að tryggja liðinu bronsið. Upplýsingar um markaskorara er fengnar frá vefsíðunni Fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×