Íbúum landsins fjölgaði um 1% árið 2014 Sæunn Gísladóttir skrifar 12. október 2015 09:22 Fjölmennasta sveitarfélagið árið 2014 var Reykjavík með 121.822 íbúa. Vísir/GVA
Hinn 1. janúar síðastliðinn var íbúafjöldi á Íslandi 329.100 sem er um 1% fjölgun frá sama tíma árið áður eða um 3.429 einstaklingar. Árið 2014 fæddust 4.375 börn en 2.049 manns létust. Fæddir umfram dána voru því 2.271. Þá fluttust 5.875 utan en 6.988 til landsins. Aðfluttir umfram brottflutta voru því 1.113 árið 2014. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar. Í upphafi árs 2015 voru 60 þéttbýlisstaðir á landinu með 200 íbúa eða fleiri. Auk þeirra voru 37 smærri byggðakjarnar með 50–199 íbúa. Alls bjuggu 308.515 í þéttbýli 1. janúar síðastliðinn og hafði þá fjölgað um 2.873 frá sama tíma ári fyrr. Í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu alls 20.585. Fjölmennasta sveitarfélagið var Reykjavík með 121.822 íbúa. Það fámennasta var hins vegar Helgafellssveit þar sem bjuggu 53 íbúar. Árið 2014 fækkaði fólki í 28 sveitarfélögum og á þremur landsvæðum af átta. Erlendir ríkisborgarar voru 24.294 hinn 1. janúar 2015 og af þeim voru Pólverjar langfjölmennastir. Alls voru 39.223 landsmanna fæddir erlendis (16.828 karlar og 17.544 konur), eða 12% mannfjöldans, fleiri en nokkru sinni.
Mest lesið FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Neytendur Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða Neytendur Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Viðskipti innlent Tekur við stöðu forstjóra Securitas Viðskipti innlent Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík Atvinnulíf Guðbjörg orðin pítsudrottning Viðskipti innlent Eyjólfur vill halda formennsku áfram Viðskipti innlent Mamman ítrekað læst úti en fær engar skaðabætur Neytendur Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Viðskipti innlent Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Markaðstorg með raforku spretta upp KEA nú stærsti hluthafinn í Norlandair Fjögurra stjörnu hótel opni við Skógarböðin Hákon nýr öryggisstjóri Arion Fyrrverandi forstjóri Bláfugls stýrir nýju sviði hjá Play Hafa tapað milljörðum vegna endurtekinna lokana Segir yfirlýsingu bankaráðsins „auma“ Bankasýslan hafi ekki gert athugasemdir við tilboð í TM Munu skoða að losna strax við TM Þriggja mínútna símtal uppfylli ekki skýran samning Öllu bankaráði Landsbankans skipt út Stefna Eimskip: Tjón Samskipa gæti hlaupið á milljörðum króna Spá því að verðbólga hjaðni Sjá meira