Innlent

Íbúi við Hraunbæ: Heyrði um fimmtíu skot

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Að sögn íbúans vaktaði lögreglan stigaganginn þar til sérsveit lögreglu kom á vettvang.
Að sögn íbúans vaktaði lögreglan stigaganginn þar til sérsveit lögreglu kom á vettvang. mynd/vísir
Íbúi við Hraunbæ, þar sem sérsveit lögreglu yfirbugaði byssumann í morgun, segir skothríðina hafa staðið lengi yfir.

„Ég sat í sófanum og heyrði hvell eins og það hefði verið klesst á bíl,“ segir hann í samtali við Vísi, en hann vildi ekki koma fram undir nafni.

„Ég hoppaði út í glugga og sá þrjá löggubíla beint fyrir utan. Löggurnar koma hlaupandi út, skýla sér bak við löggubílinn og rífa upp byssur og eitthvað dót.“

Að sögn íbúans vaktaði lögreglan stigaganginn þar til sérsveit lögreglu kom á vettvang.

„Þegar Víkingasveitin kom byrjuðu þeir að taka fólkið á stigaganginum hans út bakdyramegin, börn og fólk á öllum aldri. Svo byrjar þessi skothríð hinum megin og hún stendur yfir í dágóðan tíma. Klukkutíma eða jafnvel meira. Ég heyrði alveg fimm, sex, jafnvel sjö „ránd“, alveg örugglega um fimmtíu skot.“

Aðspurður segist íbúinn þó aldrei hafa orðið smeykur. „Nei nei, það voru fjörutíu löggur fyrir utan. Ég hafði engar áhyggjur af þessu.“


Tengdar fréttir

Umsátursástand í Árbæ - skotið á lögreglumenn

Umsátursástand er í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem maður virðist hafa skotið af byssu. Allt tiltækt lið lögreglu er á staðnum og hefur verið opnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir íbúa á svæðinu sem hafa verið látnir yfirgefa heimili sín. Maðurinn virðist staddur í blokk í Hraunbænum. Stóru svæði í hverfinu hefur verið lokað.

Myndband: Lögreglumenn skjóta á íbúð mannsins

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá sérsveitarmenn frá lögreglunni þegar aðgerðin í Árbæ stóð sem hæst. Meðal annars sést hvar lögreglumenn skjóta að því er virðist reyk- eða táragassprengjum inn í íbúð mannsins sem hafði lokað sig af í íbúð sinni.

Búið að yfirbuga manninn

Búið er að yfirbuga manninn sem skaut af byssu við Árbæ í morgun og er búið að aflétta lokun sem var í stórum hluta hverfisins. Lögreglan tilkynnti íbúum sem höfðu verið fluttir í Árbæjarkirkju þetta nú fyrir skömmu. Ekki er vitað hvort maðurinn sé særður.

Árbæjarkirkja veitti 10 manns áfallahjálp

"Það er óhætt að segja að þetta hafi verið óvenjulegt morgunverk og óskemmtilegt,“ segir sóknarprestur í Árbæjarkirkju sem tók á móti íbúum í stigagangi byssumannsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×