Lífið

Íbúð sem þjónað hefur ýmsum hlutverkum

Guðný Hrönn skrifar
Við þetta borð hafa þær mæðgur átt margar notalegar stundir saman.
Við þetta borð hafa þær mæðgur átt margar notalegar stundir saman. Vísir/Anton Brink
Margrét Weisshappel, grafískur hönnuður hjá Tulipop, býr í kjallaranum hjá foreldrum sínum ásamt dóttur sinni. Kjallarinn hefur þjónað ýmsum hlutverkum í gegnum tíðina en Margréti hefur nú tekist að gera íbúðina ansi notalega.

Listaverk eftir m.a.Jóhann Ludwig Torfason, Ragnhildi Stefánsdóttur, Ragnhildi Weisshappel, Sólveigu Pálsdóttur og Óskar Hallgrímsson prýða veggi heimilisins.Vísir/Anton Brink
Spurð út í stílinn sem einkennir heimilið segir Margrét engan ákveðinn stíl ráða ríkjum.

„Flest hér inni hef ég fengið gefins frá fjölskyldumeðlimum enda er ég umkringd söfnurum sem geta ekki hent neinu. Þannig að stíllinn á heimilinu fer svolítið eftir því hversu smart safnararnir eru.“

Eldhúskrókurinn.Vísir/Anton Brink
Húsgögn Margrétar eiga sér greinilega mikla sögu og sömuleiðis íbúðin sjálf.

„Þessi litla íbúð hefur gengið í gegnum miklar breytingar, hún var einu sinni bar, sjónvarpsherbergi, þvottahús og baðherbergi með gufubaði. Svo varð hún ein risastór stúdíó­íbúð fyrir mig og systur mína. Með tímanum hefur hún breyst í eðlilega íbúð. Svo ég reyni að leggja ekki of mikið á hana í viðbót,“ segir Margrét.

Skemmtileg listaverk upp um alla veggi.Vísir/Anton Brink
Uppáhaldsstaður Margrétar á heimilinu er við vinnuborðið sem þjónar líka hlutverki borðstofuborðs.

„Ég elska vinnuborðið mitt sem pabbi minn smíðaði í hollenskum stíl. Hann notaði notaði gamla rennda fætur undir það sem langafi minn á Ísafirði hafði smíðað. Mér finnst rosa kósí að sitja á kvöldin við þetta borð og vinna, borða, horfa á Netflix, spjalla við frænkur mínar eða perla með dóttur minni.“

Þennan skáp bjó Margrét til með hjálp föður síns úr gömlum pappírsskáp og útskriftaverki sínu frá LHÍ.Vísir/Anton Brink
Dóttir Margrétar er mikill aðdáandi Tulipop. “Hún elskar nýju bangsana, púslin og Bubble-lampann,” segir Margrét.Vísir/Anton Brink
Margrét hefur vanið sig á að eiga alltaf nóg til af ávöxtum. Vísir/Anton Brink
Margrét segir smekk ættingja sinna hafa ráðið stílnum á heimili hennar,Vísir/Anton Brink





Fleiri fréttir

Sjá meira


×