Innlent

Íbúar yfirgefa heimili á Patreksfirði: „Snælduvitlaust veður“

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá Patreksfirði
Frá Patreksfirði Bæjarins besta
„Ég held ég sé ein eftir í götunni,“ segir Sigurbjörg Pálsdóttir íbúi í Urðargötu á Patreksfirði sem er inni á reit 4 sem var rýmdur í dag vegna snjóflóðahættu. 60 til 70 metra breitt snjóflóð féll á mörkum Urðargötu og Mýrargötu fyrr í dag og var gripið til rýminga í kjölfarið. Þrettán hús eru á reit fjögur en ekki er búið í tveimur þeirra.

Sigurbjörgu var hleypt heim til sín til að sækja muni fyrir sig, eiginmanninn og 11 ára son þau halda heim til dóttur þeirra hjóna þar sem fjölskyldan mun gista þar til hættan er liðin hjá. „Við vorum bara að loka niður í vinnu og fengum að skjótast heim að ná í dót,“ segir Sigurbjörg.

60 til 70 metra breitt snjóflóð féll á mörkum Urðargötu og Mýrargötu á Patreksfirði í dag.map.is
Fastur í allan dag upp á heiði

Hún segir veðrið á Patreksfirði snælduvitlaust. „Það er bara eitt orð yfir þetta. Maður sér varla út úr augum. Það er eiginlega allt búið að vera ófært í plássinu,“ segir Sigurbjörg sem rekur flutningafyrirtæki á Patreksfirði og er einn starfsmaður þeirra fastur á flutningabíl á Kleifaheiði. „Hann er búinn að vera fastur þar síðan í morgun með fullan bíl af fiski og kemst ekki neitt. Hefillinn fastur og ekkert hægt að ná honum,“ segir Sigurbjörg.

Hún segir rýmingar á Patreksfirði vegna snjóflóðahættu ekki hafa verið algengar seinni ár en hafi þó verið ansi tíðar um miðbik tíunda áratugar síðustu aldar þegar mannskæð snjóflóð féllu á Flateyri og í Súðavík.

Öllu vön

„Þannig að maður er öllu vanur,“ segir Sigurbjörg sem á ekki von á öðru en að enn verði snjóflóðahætta á morgun miðað við veðurspána. „Þetta gengur allt sinn vanagang,“ segir Sigurbjörg að lokum.

22. janúar árið 1983 fórust fjórir í tveimur flóðum á Patreksfirði.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×