Innlent

Íbúar tóku Njálsgöturóló í fóstur

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Íbúar fá styrk frá borginni til að bæta umhverfi sitt og í dag hittist hópur á Njálsgötunni með málningarpensla og kústa í höndum. 

Á Njálsgötunni við Austurbæ er gríðarlega stór leikvöllur sem ber heitið Njálsgöturóló.

Í dag var hópur samankominn á leikvellinum til að þrífa, mála og fegra umhverfið. Þetta er vinahópur Njálsgöturóló en Reykjavíkurborg býður íbúum að stofna vinafélag og taka leiksvæði og önnur opin svæði í fóstur.

Í dag kom Vinahópurinn saman í fyrsta skipti með málningu og verkfæri frá borginn og um leið var heilmiklu lífi blásið í hverfisandann.

„Vinafélagið er nýstofnaður félagsskapur íbúa hér í hverfinu sem vill beita sér fyrir því að fegra umhverfið á þessum sögufræga rólóvelli sem þarf aðeins meiri ást og alúð," segir Kristrún Heiða Hauksdóttir, formaður Vinahópsins.

Njálsgöturóló um miðja síðustu öld fengin úr ljósmyndasafni Ólafs ÞorsteinssonarÓlafur Þorsteinsson
Leikvöllurinn er meðal þeirra elstu í borginni og hefur verið í nær óbreyttri mynd í tæplega áttatíu ár. 

Síðustu ár hefur þó minna verið af börnum á leikvellinum, en meira af rusli og jafnvel sprautunálum.

„Völlurinn er rosalega stór. Það eru leiktæki á nokkrum stöðum en það eru líka skuggsæl sund og rjóður þar sem ýmislegt annað þrífst, sem er ekki barnvænt. Viljum hreinsa allt burt svo það birti til," segir Kristrún en völlurinn er stór og margir möguleikar.

„Við köllum eftir hugmyndum. Vinafélagið fagnar öllum ábendingum um hvað væri gaman að gera hérna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×